Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

sunnudagur, febrúar 12, 2006

sunny california here i come!

ég fer með tomma til kaliforníu eftir tæpa viku. við verðum þarna í átta nætur á sama hóteli og síðast, tommi að vinna og ég að læra og gera eitthvað skemmtilegt. draumur í dós.

ég er að reyna að pína mig til að læra núna. það er ekkert svakalega gaman að læra fyrir "ear training, sight singing and keyboard skills." ég verð bara að reyna að harka af mér...do re mi...do mi sol...veiiii gaman gaman.

nýjustu fréttir...ég er byrjuð í stepptímum. fór í síðustu viku og skemmti mér konunglega. svo gekk mér líka vel og átti auðvelt með að læra þetta enda snýst þetta voðalega mikið um takt og tónlistina sem maður dansar við. ég hef náttúrulega 12 ára ballettreynslu og annað líka þannig að maður er ágætlega undirbúinn. svo keypti ég mér skó og alles, á bara eftir að prófa þá. nú þarf ég bara að æfa mig að syngja með svo ég geti orðið dans- og söngstjarna.