Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

mánudagur, febrúar 06, 2006

ókei, þessi kristján er ekki að koma vel útúr eurovisionmálinu. ef allt gengur að óskum hjá honum dettur silvía út og hann telur sig komast áfram með annað hvort birgittu eða dísellu. ef silvía dettur út verða allir svo fúlir út í hann að það kýs enginn þessi tvö lög...ég held að hann sé alveg búinn að klúðra þessu fyrir sér núna.

svo er þetta mál með danina og skrípó. mér finnst eiginlega skrýtnast við þetta allt að þessar myndir hafi verið birtar af því að það er alveg augljóst að þetta myndi móðga vissa þjóðfélagshópa. núna er allt komið í hund og kött útaf þessu og einhverjir hópar eru farnir að keppast við að teikna skopmyndir af gyðingum og aðrir farnir að hóta líflátum og hengingum. hvar endar þetta eiginlega?
var þetta þess virði? er málfrelsi mikilvægara en friður?

2 Comments:

At 11:14 AM, Anonymous Nafnlaus said...

aej nu er eg alveg sammala ther

 
At 11:14 AM, Anonymous Nafnlaus said...

thetta er Bjorg herna ad ofan..hehe

 

Sendu inn athugasemd

<< Home