what's new pussycat?
ég var að fá geisladiskinn með tónlistinni úr myndinni í hendurnar...þurfti að kaupa hann notaðan af netinu af því að hann fæst ekki lengur. mig er búið að langa í þennan disk lengi...burt bacharach í essinu sínu og nöfnin á lögunum eru alveg æðisleg: "high temperature, low resistance", "stripping really isn't sexy, is it?", "pussy cats on parade". nú þarf ég bara að halda partý til að geta spilað þetta í bakgrunninum og klæðst laki eins og audrey hepburn í breakfast at tiffany's.
ég fer til new york á laugardaginn með francescu og co. það verður án efa stuð. keyrum þangað á laugardagsmorgun og svo til baka á mánudagskvöldið...tekur um sex tíma að keyra ef maður stoppar ekkert. þetta er samt í fyrsta skipti sem ég fer til einhvers lands gagngert til að syngja. er það ekki bara ágætis milestone? :-)
það rignir úti og ég er að drekka heimagert límonaði...með lífrænum sykri og gse (grapefruit seed extract til að koma í veg fyrir veikindi).
nú andar suðrið...bið að heilsa...

5 Comments:
Myndin er óborganleg! Peter Sellers fer á kostum. Fyrsta myndin sem Woody Allen leikstýrði.
Góða ferð til New York...gangi ykkur...;)
...þetta var ég, Svanhildur!
Já finnst ykkur ég ekki hafa staðið mig vel að kynna stínu fyrir öllum þessum góðu myndum :)
Fyrst Stína fer til NY um helgina, verður þookkalegt 'guys night out' um helgina!
Við félagarnir í shot while hunting ætlum að hittast, fá okkur pizzu og horfa á Sódómu! Hmm... kallast svoleiðis kannski 'guys night in'?
Hvað sem því líður, datt mér í hug að gefa dyggum lesendum stinastud.com tækifæri til að heyra smá sýnishorn af því sem gengur á í lagasmiðju SWH þessa dagana.
Hér er einskonar "internet forspilun" á hinu (brátt) sívinsæla lagi Battery Age
Endilega látið okkur vita hvað ykkur finnst :)
ég vil nú taka það fram að ég var búin að sjá þessa mynd þegar við tommi byrjuðum saman. bara svo það sé á hreinu. hehe... :-)
Æj, ég á þennan disk, hefði getað sent þér hann. Keyptur á hátindi Bacharach-æðisins en hefur ekki farið undir geislann í mörg ár. Er samt frábær. Ég er meira búin að hlusta á Pink Panther tónlistina (kommentin frá Peter Sellers á umslaginu eru óborgaranleg). Ég ætti nú að grafa diskinn upp. Óþarfi að fara alveg á mis við þessa snilld.
Sendu inn athugasemd
<< Home