snjórinn fór og kom aftur. önbilívabúl.
í gærkvöldi kom vinafólk okkar í mat og við vígðum fonduepottinn okkar (sem við fengum í brúðkaupsgjöf) með dýrindis súkkulaðifondúi. við átum á okkur gat og fórum svo út á jazzklúbb að hlusta á dave turner spila með hljómsveit sinni. hann er einn af bestu saxofónleikurum í kanada og bandið hans var alveg hrikalega gott...spilaði svona fönkí djass.
við hittum par sem við þekktum í biðröðinni fyrir utan og vorum svo heppin að fá borð fyrir alla á þessum litla stað, nálægt sviðinu og allt. þarna sátum við og kjöftuðum og hlustuðum þangað til spileríið var búið...þá kom í ljós að maður orgelleikarans í bandinu er dani og við tommi fengum því að spreyta okkur örlítið á dönsku. for helvede.
við kjöftuðum við alls konar fólk þarna þ.a.m dave turner, sem kennir líka í skólanum mínum. hann tjáði okkur að kærastan hans væri svo heilluð af íslandi að hún væri gengin af göflunum...þetta heyrir maður reglulega. hehehe... við sátum þarna þangað til ljósin voru kveikt, allir farnir og okkur hent út af þreytulegum þjónum sem langaði heim í háttinn.
gott kvöld, skemmtilegt fólk og góð tónlist.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home