Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

mánudagur, janúar 09, 2006

jájá...ég er ekkert neinn bloggsnilli, það vissuð þið alltaf!

nú er maður bara byrjaður í skólanum aftur og að koma sér úr þessum jólafrísfílíng, það gengur erfiðlega...einhverra hluta vegna finnst mér eins og ég eigi bara að vera inni að hjúfra mig undir teppi fyrir framan imbann með konfekt!

það er ótrúlega mikill snjór úti! það hefur ekki verið svona mikill snjór hérna síðan við fluttum til montreal...mig langar að prófa nýju skíðabuxurnar mínar úti á svölum, bara demba mér út í snjóhrúguna og velta mér um, það hlýtur að vera gaman.

ég er búin að velja mér tvö sænsk lög til að læra á næstu vikum, fannst það tilheyrandi verandi skandinavi. lögin heita "visa från utanmyra" og "att angöra en brygga" og eru bæði tvö mjög hefðbundin lög sett í djasslegt form.

við tommi vorum að horfa á "how do you like iceland" áðan og fannst það afskaplega áhugavert. ég held að það sé gott fyrir alla íslendinga að sjá þetta. ísland hefur náttúrulega sína kosti og galla en íslendingar vilja oft ekkert viðurkenna að þeir hafi nokkra galla. þarna er t.d talað illa um íslenskan arkitektúr...fólk sem fór niðrí bæ og bara fann ekki eitt fallegt hús! það verður gaman að sýna vinum okkar héðan þessa mynd...

annars átti maggi bró afmæli um daginn...á þrettándanum. við hjá stinastud.com óskum honum til hamingju með það. :-)

5 Comments:

At 8:39 PM, Anonymous Britta said...

Það er búið að sýna þessa mynd á Íslandi ;)

 
At 11:54 PM, Anonymous Nafnlaus said...

já sko við fengum hana í jólagjöf á dvd...sko..
en við vorum að koma af king kong. hún var rosaleg. újé.
stína

 
At 7:15 AM, Anonymous Britta said...

jamm og jájá... en þetta er nú ekkert heilagt sem þessir útlendingar segja um Ísland..... það eru alveg til falleg íslensk hús sko ;) heheheh

Britta

 
At 3:02 PM, Anonymous tommi said...

nei

 
At 5:41 AM, Anonymous Nafnlaus said...

Það er margt skemmtilegt í þessari mynd...þó að það komi líka fram fullt af þessum "klisjum" sem við vitum alveg að eru ekkert algildur sannleikur - ég man samt eftir einu sem er alveg rétt og haft eftir fyrrum sendiráðsritara í rússneska sendiráðinu: íslenskt kvenfólk kann ekki að klæða sig eftir veðri!! kv. svanhildur

 

Sendu inn athugasemd

<< Home