ég var í new york city um helgina síðustu að syngja með francescu á ráðstefnu fyrir listamenn og þá sem vilja kaupa sjóin þeirra (http://www.artspresenters.org/). við vorum með fjögur stutt sjó (sumsé show á ensku, með íslenskri stafsetningu). ráðstefnan var á hilton hótelinu í manhattan og fullt af listamönnum frá öllum heiminum þarna að sýna sig og sjá aðra. ég sá og hitti t.d band sem heitir lavay smith og ræddi við hljóðfæraleikaran í því, mjög fyndnir kettir (sumsé cats á ensku...jazz lingó).
fyrir þá sem ekki vita þá vinn ég sem bakraddasöngkona fyrir francescu gagnon sem er betur þekkt sem upprunalega hvíta söngkonan úr alegria sýningunni frá cirque du soleil. ég er búin að vera í þessu síðan í maí á síðasta ári og hef sungið með þeim á u.þ.b 20 tónleikum hér og þar um quebec og víðar. svo fyrir utan þetta er ég að læra jazzsöng í concordia university hér í montreal.
þar hafiði það.
tommi er í kaliforníu að gúgglast en kemur heim annað kvöld. annars er bara mest lítið að frétta...ég var bara heima í dag með magaverk...déskotans vesen.

1 Comments:
Það er svona tónlistarráðstefna í Cannes núna líka. Ekki vissi ég að það væru til söluráðstefnur fyrir tónlistamenn!!! Alltaf lærir maður eitthvað nýtt.
Sendu inn athugasemd
<< Home