þá er maður loksins kominn heim til sín.
ferðin hingað gekk bara vonum framar. áttum von á að missa af síðustu vél til montreal en henni seinkaði jafnmikið og okkur þ.a við náðum og vorum fegin að leggjast í rúmið okkar seint í gærkvöldi. æ lov mæ bed.
gleðilegt ár annars allir saman. nú verður bara tekið á því 2006 og gert enn betur en 2005...bara bjart framundan held ég og nóg að gera.
fríið okkar var bara mjög gott. kalifornía lék við okkur og samveran með vinum og vandamönnum á íslandi bætti upp rigningu og rok allan tímann. ótrúlegt hvernig veðrið á íslandi er bara köööörrrreeeiiisí!
við fengum alveg svakalega flottar jólagjafir...tommi fékk gítar frá mér (sem ég valdi aaaaaaalveg sjálf...eða þannig) og ég fékk frá honum demantshjörtu í eyrun og hálsmen. hvor er svo meira rómó?
hvernig fannst fólki svo skaupið?

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home