Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

föstudagur, desember 23, 2005



og hvað haldið þið? auðvitað er ég líka með á listanum...sagði ekki einhver "elskaðu sjálfan þig"...hmmm.

og í tilefni dagsins er hér jólalagið í ár:

JÓLALAG 2005

njótið...og gleðileg jól elsku lesendur, nær og fjær. :-)



sarah vaughan er best...eða sko ein af þeim bestu. með ótrúlegt raddsvið og svakalega flotta rödd. hallelúja!

fimmtudagur, desember 22, 2005



joni mitchell er líka í uppáhaldi hjá mér. hún er náttúrulega hippi og syngur um ást og frið og deilir á þjóðfélagið og svona. sum lögin hennar eru bara eitthvað svo yndisleg...hún fær því að vera með í dagatalinu í ár. californiaaaaaa....

miðvikudagur, desember 21, 2005



betty carter er ein af mínum uppáhalds núorðið. ég hlustaði ekki mikið á hana áður en ég byrjaði að hlusta á jazz fyrir alvöru en núna finnst mér hún alveg svakalega góð. hún getur tekið lag sem hefur verið sungið þúsund sinnum áður og gert það algjörlega upp á nýtt og með nýjum stíl.

þriðjudagur, desember 20, 2005



ella fitzgerald var náttúrulega snillingur! betri jazzsöngkonur er erfitt að finna...þetta er auðvitað spurning um smekk en ég held að flestir geti verið sammála um að hún er ein af "the great masters"

annars er maður bara að taka þátt í jólastressinu á íslandi. kaupa, kaupa, kaupa...éta, éta og kaupa aðeins meira. fjúff!
lakkrísdúndur er gott nammi en stólpi er ekki alveg að slá í gegn finnst mér.
það er svo fullt af nýjum búðum í bænum, mjög skemmtilegt að skoða þar og á skólavörðustígnum. huggulegt.

mánudagur, desember 19, 2005


aretha klikkar ekki...hún hefur verið í uppáhaldi hjá mér frá því ég var í melaskóla. queen of soul.

sunnudagur, desember 18, 2005

jóladagatalið er svakalega seint á ferðinni í ár...hér er hún dusty springfield...ein af fyrstu söngkonunum sem ég hlustaði mikið á og hermdi eftir í sturtu á unglingsárunum. :-)

laugardagur, desember 17, 2005

egilsstaðir 2005 var besta útihátíðin í ár...þeir sem mættu ekki eru lúðar/lúður/trompet!

geggjað klúður í lendingu í keflafýk...rokrassgat...tvær tilraunir en ákveðið að fljúga á egilsstaði í staðinn. hef ekki komið þangað í tíu ár og fannst bara huggulegt að fá mér lakkrísdraum í morgunsárið svona eftir sólarhringsferðalag...eða þannig.

jólalagspósturinn verður vonandi sendur út á morgun...er bara aaaaaalltof þreytt fyrir það núna.

skál

fimmtudagur, desember 15, 2005

sunny california...

hér er alltaf gott veður! þó að það sé vetur þá er samt meira en 15 stiga hiti úti. æ læk itt!

er að fara inn til san fran í dag að skemmta mér á meðan tommi vinnur og vinnur. hehee. vinnustaðurinn hans er reyndar sá skemmtilegasti sem ég hef komið inn á, ótrúlega sniðugt allt saman og spennandi. meira að segja klósettin eru æði. :-)

nú fer að líða að því að ég sendi út jólatölvupóstinn með hinu árlega jólalagi. allir að bíða spenntir...eða þannig.

stuðkveðjur frá sílíkondal

fimmtudagur, desember 08, 2005

búin í prófum.
komin í jólafrí.
fer til kaliforníu á morgun.
geri kannski jóladagatal á morgun eða hinn...of þreytt til þess núna.
annars er bara stuð og rokk og ról!
vei.

óver end át

fimmtudagur, desember 01, 2005

idol

allir að kjósa brynjar tommabró í iiiiiddoooooolllll...idol..i dol...

bráðum nenni ég að setja inn dagatal...bráðum.