Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

miðvikudagur, nóvember 30, 2005

engir serislenskir stafir herna i skolanum...is kola num

thad voru tonleikar i gaer med francescu og their gengu framar vonum. allir i rosastudi og mikid klappad og oskrad i lokin. celebrity ljosmyndarinn victor diaz var tharna og tok myndir og folk fra plotufyrirtaekjum og utgafudoti var tharna lika, th.a thetta voru daldid mikilvaegir tonleikar fyrir hana francescu...eins gott ad their gengu vel. svo eftir daemid hringdi eg i tomma til ad tekka a honum. hann var ad ljuka hljomsveitaraefingu og thad var vist kveikt a sjonvarpinu tharna hja theim og viti menn, kom ekki bara yours truly a skjainn i tiufrettunum! aem feimos. mer fannst thetta ferlega snidug tilviljun...ad their skyldu hafa sed okkur i sjonvarpinu akkurat tharna...eg hafdi ekki hugmynd um ad thad hefdi einhver komid og tekid upp. alltof mikill reykur i salnum held eg bara!

i kvold verda adrir tonleikar og verda their teknir upp i heild sinni og vonandi ad thad verdi trodfullt eins og i gaer og stemning.
a fostudaginn fer eg svo til quebec city med theim og syng a tvennum tonleikum...svo eru thad bara prof og fleiri prof...sem byrjudu reyndar i gaer. hehh...

sunnudagur, nóvember 27, 2005

ég hef ekkert að segja. ef þið hafið eitthvað að segja væri tilvalið að skrifa það í kommnentin...ekki vera feimin!

fimmtudagur, nóvember 24, 2005

í dag sá ég aldraðan mann paufast áfram í metróinu í peysu sem á stóð "be what you want to be". einhverra hluta vegna hafði það áhrif á mig og fékk mig til að hugsa. þetta var eins konar inspírasjón. mér fannst hann flottur!

ræræræræræææææææ...

þriðjudagur, nóvember 15, 2005

it's official!

það er kominn vetur. í morgun þegar ég leit út um gluggan var byrjað að snjóa og það snjóar enn. ég hefði getað sagt sjálfri mér það í gær þegar mígrenið lagðist yfir mig að veðrið myndi breytast...ég hélt satt best að segja að það myndi rigna. yfir jörðinni er nú þunn hvít slæða en mig grunar að hún verði þar ekki lengi, þrumuveður í aðsigi og hitabreytingar meðferðis.

við erum búin að bóka far til íslandsins góða um jólin. áður en við leggjum í það ferðalag ætlum við rétt að skreppa jafnlangt ef ekki lengra vestur, til kaliforníu að heimsækja google. ég veit ekki alveg hvað ég á að gera á meðan tommi er í vinnunni, góðar hugmyndir vel þegnar (ég er komin með göngutúra, ferðir til san fran og spa- hugmyndir).

hér er ein skemmtileg mynd í lokin af mér að vera hissa í síðasta mánuði þegar aðrir reyndu að vera sem óhugnalegastir.





föstudagur, nóvember 11, 2005

hér er ein mynd frá tónleikunum í fyrradag...

þeir gengu bara nokkuð vel. við vorum síðasta bandið upp á svið og spiluðum þrjú lög (sem innihéldu öll nokkur sóló...allir spiluðu sóló í fyrsta laginu). þetta var þrusustuð eins og venjulega... :-)

ég nenni bara ekki að segja neitt meira...er búin að vera kvefuð og lasin og rétt náði að jafna mig nógu mikið til að ég gæti sungið í fyrradag. er að spá í að fara bara að lúlla eða eitthvað. adios.