Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

mánudagur, október 31, 2005

halló vín!
halloween í algleymingi hérna megin hafsins...krakkar útum allt í nornabúningum og drakúlaskikkjum að sníkja nammi. söngkennarinn minn ætlaði að búa tvíburana sína sem darth vader og darth maul, fannst það ansi huggulegt bara. við tommi kippum okkur ekki upp við þetta og högum okkur bara eins og aðra daga í dag. við fórum hins vegar út á laugardagskvöldið og klæddum okkur upp fyrir það. tommi var að spila og mætti sem hjúkka í latexbúningi, ég var hins vegar "pin-up girl" í anda sjötta áratugsins. pósa!



ég reyndi svo að koma við stellingum þar sem ég var óvart að hysja upp um mig sokkabuxurnar og pilsið fór örlítið upp...svona eins og þær eru á myndunum stúlkurnar, með sakleysislegan og hissa svip. við vöktum mikla lukku, sérstaklega tommi þar sem hann skartaði sínum fögru leggjum í stuttum hjúkkukjólnum. :-)

ég syng á tónleikum 9. nóvember með spunahópnum mínum (e. improvisation group). þetta er hluti af námskeiðinu jazz improvisation...eða djassspuni á íslensku. svakastuð það. allir að mæta!

mánudagur, október 24, 2005

ég er koooooona!

baráttukveðjur til íslenskra kvenna í dag. aight!

laugardagur, október 22, 2005

já maður er enginn ofurbloggari, það er á hreinu!

ég sit hér og reyni að semja texta við lag. ég vona bara að hann hljómi ekki heimskulega...voðalega er maður eitthvað óöruggur með svona hluti. glætan að það verði hlegið að textanum manns! jafnvel þó hann sé hallærislegur. hehe...

brynjar mágur...sumsé bróðir tomma er kominn áfram í idol á íslandi...allir að kjósa brynjar!!! :-)

hér er farið að kólna svo um munar...farið að frysta eitthvað smá á næturnar. fyrir svona tveimur vikum var yfir tuttuga stiga hiti! fríkað veðurfarið hérna.

ég söng annars á einhverri bókakynningu á mánudaginn með henni francescu. það var mjög fræðandi. þetta var einhver ljósmyndari (Victor Diaz Lamich) sem var að gefa út bók með myndum frá indlandi. þessi ljósmyndari er æðislega "hip og kúl" núna og þar af leiðandi voru 700 manns á þessari kynningu og flestallt elítuartífartistar, módel og blaðamenn. musiqueplus, musimax og tva sjónvarpsstöðvarnar voru þarna og tóku myndir af okkur á meðan við reyndum að halda lagi uppi á sviði með lélegasta hljóðmann sögunnar að klúðra hlutunum! ég var með eitthvað fjólublátt indverskt sjal um mig og svona indverkst meiköpp á milli augnanna með gimsteini...hehe...indverskt þema í gangi á þessari opnun.
en mikið svakalega er svona elítulið merkilegt með sig eitthvað...virðist ekki skipta máli hvar maður er, it's all the same. :-)

þriðjudagur, október 18, 2005

bjögga beib á afmæli í dag! til hamingju með afmælið elsku krúttbollan mín. :-)

laugardagur, október 15, 2005

tommi gunn var að spila í gær og ég fór og horfði á þá gæja töffarast uppá sviði...það er alveg svakalegt hvað þeir eru myndarlegt band. ég er viss um að allar stelpurnar í salnum voru alveg agndofa yfir töffaraskapnum...haha...hehe...og ég stóð upp eftir spileríið og öskraði "i'm married to the guitar player"..ekki alveg en það var mikið öskrað og kallað, sem var ansi fyndið.

ég er að fara að syngja með francescu á mánudaginn en ég veit ekki hvar og ekki útaf hverju...kemur vonandi í ljós fyrr en seinna, betra að vera undirbúin. ég er svo líka að fara í nokkur próf í næstu viku. sjæse!

það er alveg merkilegt hvað það kemur alltaf meira og meira í ljós eftir því sem maður lærir meira hvað maður kann svakalega lítið. ég er t.d núna að uppgötva alveg nýja heima í tónlist og sé bara að ég kann algjört smotterí miðað við það sem hægt er að gera og finnst það smá niðurdrepandi um leið og það er svakalega spennandi. blendnar tilfinningar... það að syngja popplög eftir eyranu er svo svakalega beisikk miðað við hvað sumt fólk er að gera, en málið er bara að áheyrendur eru ekkert endilega meðvitaðir um hvað er "menntuð" tónlist og hvað ekki...as log as it sounds good þá er fólki yfirleitt nokk sama. :-)

sunnudagur, október 09, 2005

núna er thanksgiving í kanada. í tilefni af því var okkur boðið í matarboð heim til íslenskra hjóna sem búa hérna og við fengum þvílíkar kræsingar! kalkúnn, fylling, brúnaðar kartöflur, sweet potatoes, baunir, gulrætur, salat, sósa, heimatilbúið rauðkál, kökur, ís, snakk...þetta var alveg svakaleg veisla og ég hef bara aldrei smakkað eins góðan kalkún! við vorum ansi södd eftir máltíðina en létum það samt ekki aftra okkur í fimbulfambi og actionary...svakastuð hjá okkur í gær.

ég er búin að vera á fullu í skólanum og nú er ég komin með "minn" hóp í improv1 tímunum...við erum sumsé sjö manna band: trommur, gítar, bassi, bassaklarinett, þverflauta, fiðla og ég sé um sönginn. við erum að æfa nokkur lög og spilum á tónleikum í nóvember og svo líklega í febrúar og maí. þetta verður mjög skemmtilegt en við erum ekki alveg búin að hrista saman hópinn og spila okkur saman, það tekur smá tíma.

sá sem semur tónlistina með henni francescu samdi lag fyrir mig um daginn og ég er núna að reyna að semja texta við það og æfa fyrir upptöku. við sjáum til hvað gerist með það.

þegar ég var að labba heim til hans um daginn tók ég mynd á förnum vegi...þetta er alveg týpísk gata í austurborginni þar sem frönsk menning er allsráðandi. það sést ekki alveg á myndinni en þarna situr fólk úti á svölum með rauðvínsglös og sötrar og kjaftar og borðar ábyggilega osta með...þarna í gluggunum mátti svo sjá forvitnar kisur, striga og pensla, hljóðfæri og ýmiss konar húsgögn...þetta var um kvöldmatarleytið þannig að matarlyktin ilmaði um allt, og af henni að dæma var verið að elda alls kyns exótískan mat! (p.s það er hægt að smella á myndina til að sjá hana stækkaða)

mánudagur, október 03, 2005

mig langar í saltlakkrís.

sunnudagur, október 02, 2005

fórum í afmæli í gær á erótískum dansstað! kærasta stráks sem er með mér í skólanum ákvað að hafa óvænt (surprise) partý fyrir hann inni á slíkum stað...sem var ansi fyndið bara. við tommi skelltum okkur bara, enda ofsalega liberal skandinavar á ferðinni. okkur fannst dömurnar með eindæmum fýldar á svip og flestar þeirra kunnu nú ekkert að dansa...löbbuðu í fýlu um sviðið á alltof háum skóm. við fórum snemma að geispa. svo voru þarna nokkrir steggir og það var einhver seremónía sem þeir fóru í gegnum á sviðinu sem var með vandræðalegri hlutum sem ég hef séð! þeir voru klæddir úr og nærbuxurnar þeirra rifnar og svo voru nokkrar dömur að krota á þá með stórum pennum og einn steggurinn lenti í því óláni að láta draga niðrum sig nærbuxurnar uppi á sviðinu. eftir það atvik sáust handahreyfingar á hverju borði sem gáfu til kynna að maðurinn hefði verið undir meðallagi á vissum sviðum...öhömm...
þetta var áhugaverð reynsla og verð ég nú að segja að dömur á skemmtistöðum á t.d íslandi eru meira spennandi en gellurnar sem voru að dansa þarna...þær brosa allavega!!