Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

miðvikudagur, september 28, 2005

ein mynd í viðbót...




svona leit ég út þegar ég fékk nafnið "kristín birgitta ágústsdóttir"...svakalega hissa!

sunnudagur, september 25, 2005

Stína og Britta eru svo svakalega artí!
Mér finnst þetta alveg kostuleg mynd.

laugardagur, september 24, 2005

svona lítur út hjá sjónum norðar í quebec, nánar tiltekið matane...mér finnst ég vera lík mömmu á þessari mynd! ¨


hrefna "klukkaði" mig og neyðist ég því til þess að skrá 5 tilgangslausa hluti um mig hér fyrir neðan:

1. ég æfði ballett í 12 ár og sakna þess ennþá að dansa í búning á sviði

2. ég fríka út ef einhver bítur í tau/hluti úr garni/ofið efni...ég veit ekki hvers vegna en mér finnst það óstjórnlega klígjulegt.

3. mér finnst svakalega kúl að maðurinn minn spili á gítar í rokkhljómsveit og
mér finnst svakalega kúl að maðurinn minn vinni hjá google oooooog mér finnst ekkert að því að monta mig á því!

4. ég veit ekki hvað ég á mörg skópör en samt vantar mig alltaf skó...ég gæti talið upp þrjú pör sem mig sárvantar þetta augnablikið.

5. ég hætti að vera verkfræðingur til að geta orðið tónlistarmaður...fyrir fjórum árum vann ég í hugbúnaðarfyrirtæki í london en núna er ég á öðru ári í háskóla að læra jazzsöng. ég gæti ekki verið ánægðari!

there you have it. ætli ég verði ekki að klukka einhverja fimm líka...hmmm...
björg, svanhildur, guðrún lára, matta og mcmaggi

fimmtudagur, september 22, 2005

nú er allt komið á fullt í skólanum hjá mér og ég svona er hálfsmeyk við að hafa tekið sex kúrsa. það er orðið of seint að hætta við núna svo að ég verð bara að harka af mér fram að jólum.

í einu námskeiðinu sem heitir "jazz vocal repertoire" þurfum við að læra í kringum 50 lög fyrir jól! ekki nóg með að þurfa að læra þau heldur þurfum við líka að finna nóturnar, búa til okkar eigin nótur (sumsé setja í rétta tóntegund, búa til intro/outro ef þarf og breyta útsetningu), geta impróviserað yfir lagið og vera búin að skrifa málsgrein um inntak þess! þetta er alveg gífurleg vinna ef maður ætlar að gera þetta allt...úff.

í dag fer tommi til toronto með hljómsveitinni sinni. þeir eru að fara að spila á indie week í toronto á morgun. vonandi slá þeir í gegn og fá plötusamning...hehe

fimmtudagur, september 15, 2005

ég var ekki búin að átta mig á því að söngvarinn og tveir aðrir meðlimir í arcade fire voru í concordia...sumsé sama skóla og ég að læra tónlist og ég held að söngvarinn hafi útskrifast í fyrra (veit ekki hvað var aðalhljóðfærið hans þó). ég man allavega eftir að hafa rekist á hann á göngunum þar...gaman að því. ég frétti að þau hefðu verið alveg frábær í letterman í gær.

miðvikudagur, september 14, 2005


í dag var workshop með heimsfrægri söngkonu (langaði bara að nota þetta orð...ok) sem heitir sheila jordan. hún er alveg frábær! ég var nú ansi feimin að taka þátt fyrst en hún bara dreif okkur öll upp á svið og lét okkur syngja einn chorus af blús með okkar eigin texta svona til að fá okkur til að slappa af...hehh...gekk allt í lagi bara, fólk var ótrúlega ólíkt í því hvernig það kom þessu frá sér og ekkert nema gott um það að segja.
ég tók tvær myndir...og setti þær hér

þriðjudagur, september 13, 2005

í dag og á morgun verða 30 gráður hérna í montreal...á maður ekkert að fá að nota haustfötin sín??? hehe, ég er nú ekki alveg að kvarta en samt...

mánudagur, september 12, 2005

lítið að frétta af okkur svosem...tommi er á leiðinni til la á einhverja microsoft ráðstefnu og ég er á leiðinni í fyrsta söngtímann á eftir. ég veit nú ekki alveg hvað mér á að finnast um að tommi sé að fara þetta eftir að lesa fréttirnar í gær um hótanir frá alkæda! ég ætla að reyna að vera ekki of stressuð yfir þessu.

töffarahljómsveitin er búin að vera að taka upp hérna síðustu vikurnar og verður eitthvað áfram...ég mun því hafa sellskap á meðan tommi er í burtu (einhvern standandi inni í fataherberginu mínu að syngja rokk!!!)

nú þarf ég að fara að læra...næst ætla ég að hafa eitthvað krassandi að segja frá, þetta er orðið svo leiðinlegt blogg.

þriðjudagur, september 06, 2005

skólinn er byrjaður hjá mér. í dag fór ég í tónfræði, tónheyrn, jazz combo og jazz improv 1. flestir tímarnir lofa góðu og vonandi fæ ég að syngja sem mest í vetur. :-)

mér finnst ótrúlegt að lesa um hörmungarnar í new orleans og þar í kring á fréttavefum á netinu. barbara bush kom með fáránleg komment núna fyrir stuttu...sagði að fólkið sem er í texas núna væri hvort eð er svo fátækt að þetta væri bara fínt fyrir það að fá að vera í texas, þau væru bara að koma vel útúr þessu en að það væri hins vegar óhugnanlegt að hugsa til þess að það ætti eftir að ílengjast í texas! hvað er að?

hljómsveitin sem tommi er í, shot while hunting, er komin í 2. sæti á cismfm... ætli þeir eigi ekki bara eftir að meika það strákarnir?

mánudagur, september 05, 2005

hvað er eiginlega að gerast þarna í new orleans??? þegar maður sér myndir af þessu og fréttir (aðrar en frá cnn) þá finnst manni ótrúlegt að þetta sé að gerast í n-ameríku...þetta minnir meira á þriðja heiminn vídeó frá fox news

fimmtudagur, september 01, 2005

svoooona mikið stuð...


og svooooooona sætir gæjar...

ok, það er alltof heitt hérna! ég veit að maður á ekki að kvarta yfir slíku en ég bara er orðin þreytt á þessum svita. púff!

skólinn byrjar 6. sept hjá mér og ég er bara farin að hlakka ansi mikið til. vonandi verður þetta ekki alltof mikil vinna í þetta skiptið...ég nefnilega tek sex kúrsa í stað fimm, og ég sem ætlaði bara að taka þessu rólega...hehhh

næsta helgi verður löng helgi og spurning að fara kannski í la ronde eða eitthvað (það er tívolíið hérna) fyrst við höfum aldrei farið. ég held reyndar að tommi sé búinn að lofa sér í upptökur og vinnu eins og alltaf...hmm...too busy þessi maður.

ég fór í bæinn í dag með henni dössu og skemmti mér ofboðslega vel við að kíkja í litlar sætar búðir og kaupa fótakrem og blómapott og svona smotterí. það er líka svo huggulegt að fara á kaffihús...jessöríbobb.