Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

laugardagur, ágúst 27, 2005

partýið afstaðið og síðasti gesturinn fór upp úr tíu í morgun...hehe. það var rosalegt stuð hjá okkur og nokkrir einstaklingar voru orðnir ansi drukknir upp undir lokin. alveg ágætt bara.
hér eru svo stæææææærðarinnar blómvendir sem við fengum frá gestum, ég held við höfum bara aldrei fengið jafnstóra blómvendi!!! svo var okkur gefið salatsettt og borðdúk og viskastykki, rosalega fínt allt saman. :-D
okkur er boðið í annað partý í kvöld og geri ég ráð fyrir að við höfum með okkur slatta af veitingum héðan...nóg eftir ennþá.

ég set inn myndir við tækifæri, þarf að fara yfir þær fyrst...hehehe...hohoho

miðvikudagur, ágúst 24, 2005

takk allir fyrir afmæliskveðjurnar!

ég átti mjög góðan dag...fékk french toast með ávöxtum í morgunmat, súkkulaðibombuköku og gítarspil og fór svo með tomma á globe um kvöldið...algjör lúxus. á föstudagskvöldið verður svo partý hérna og allir sem lesa þessa síðu mega koma! nú þarf ég bara að klára að taka til og búa til eitthvað að borða...hehhh...

það eru víst tónleikar hjá mér á morgun. ég misskildi planið eitthvað og hélt að þeir væru á laugardaginn. well, það er ágætt af því að þá get ég orðið alveg ógeeeeeeeeeeeeeeeeeeesliga full á föstudaginn...hehh...af kóki og spræti og jafnvel eplasíder. :-D ekki nema einhver kaupi dom perignon eða cristal, þá skal ég smakka...hehehe...kostar ekki flaskan annars tugi þúsunda? er þetta ekki það sem rappararnir drekka?

við erum að passa kisu núna. jói og jóhanna heita eigendurnir og eru að fara að gifta sig á íslandi á laugardaginn. til hamingju með það!
þetta er ótrúleg kisa...hún er svo kelin að það er einum of stundum, hún stekkur alltaf upp í fangið á manni og kelar og nuddar sér alveg eins og hún eigi lífið að leysa. svo bítur hún tomma stundum í hökuna til að sýna honum hvað henni finnst hann æðislegur...haha...og svo hrýtur hún í þokkabót! núna liggur hún ofan á poka með servíettum og dóti í...hún varð bara að leggjast akkúrat ofan á þennan poka á miðju gólfinu! furðuleg dýr.

laugardagur, ágúst 20, 2005

ég tók mynd af áhorfendunum á tónleikunum á miðvikudaginn þegar ég var uppi á sviði rétt fyrir tónleikana. takið eftir því að gömlu konurnar mættu snemma til að ná sætum þarna í garðinum...mjög huggulegt

þriðjudagur, ágúst 16, 2005

og...

hér

eru nokkrar myndir

þá er ég komin heim úr tónleikaferðalagi helgarinnar. við keyrðum á föstudagsmorguninn til ile d'orleans þar sem við héldum tónleika í sal nefndum eftir leclerc. við gistum svo á litlu sveitahóteli þarna í nágrenninu þar sem gólfin voru skökk og brakaði í öllu. á laugardaginn var svo keyrt í fimm tíma norður til matane þar sem við héldum tónleika í húsi við sjóinn og gistum svo á gömlu hóteli sem er ekki ennþá í notkun en umboðsmaður hljómsveitarinnar á fjölskyldu þarna svo við fengum að vera þarna fyrir lítinn pening held ég. fyrri tónleikarnir gengu ekki nógu vel enda hljóðið á sviðinu hræðilegt en seinni tónleikarnir gengu eins og í sögu.
á morgun verðum við svo á útisviði niðrí miðbæ montreal í hádeginu og vonandi að sem flestir mæti. það er víst búið að bjóða alls kyns umboðsmönnum og fólki sem vill hugsanlega kaupa sjóið o.s.frv.
verst bara að ég er með kvef!

þriðjudagur, ágúst 09, 2005

hér er alltof heitt og rakt. ég meinaða sko.

við áttum góðan brúðkaupsdag á sunnudaginn...fórum í "couples massage" í spa niðrí bæ, út að borða og í bíó. mjög kósí og afslappaður dagur hjá okkur. við gleymdum reyndar að horfa á vídeóupptökur af brúðkaupinu en við rifjuðum það upp og ekkert nema góðar minningar frá því. fyrir rúmri viku síðan átum við það sem eftir var af efstu kökunni í brúðartertunni sem var geymd í frystinum yfir árið. það er víst einhver hefð að borða kökuna ári eftir brúðkaupið og fannst okkur alveg tilvalið að hafa smá kaffi þarna rétt áður en við lögðum land undir fót og nýttum tækifærið til að smakka á ljúffengum lúxuskexkökum úr fortnum and mason frá honum tomma bró. kakan var ennþá svakalega góð og greinilegt að sissi bakari notaði góð hráefni í hana og vandaði vel til verks. :-)

í dag fór ég á æfingu upp úr átta í morgun og kom heim um fimmleytið...þá tók á móti mér stærðarinnar blómvöndur frá eiginmanninum. ég bara átti ekki til orð. og hann sem er með kvef og allt.

þriðjudagur, ágúst 02, 2005

komin heim til montreal

við flugum í gær til boston og keyrðum svo hingað í einum rykk...í þrumuveðri og hellidembu. það bjargaði alveg ferðinni að geta hlustað á hljóðbók!

hér er heitt að vanda og blómin orðin ansi þyrst eftir tólf daga þurrk.

nú hefst undirbúningur undir tónleikahald ágústmánaðar, æfingar á fimmtu- og föstudag og tónleikar 12., 13., 17., 19. og 25. ágúst.
það verður frábært að sjá aðra hluta quebec og líka að syngja á útitónleikum í montreal.

hljómsveitin hans tomma er að gera það gott. þeir eru að fá spilun á einni útvarpsstöðinni hérna cism fm, sem spila "unsigned" bönd líka og er mjög vinsæl á meðan háskólastúdenta og ungs fólks hér. þeir eru meira að segja í 13. sæti á vinsældalista hjá þeim og bönd eins og "belle and sebastian" og "gorillaz" fyrir neðan þá...hehehe

á sunnudaginn eigum við tommi ársbrúðkaupsafmæli...okkur er boðið í partý á laugardaginn úti í sveit og erum svona að velta fyrir okkur að nýta tækifærið og fara kannski til mont tremblant í leiðinni. :-)

ég vil nota tækifærið og þakka öllum fyrir samveruna á íslandi. við náðum því miður ekki að hitta næstum því alla sem við ætluðum að hitta, ekki frekar en fyrri daginn! next time...

nú er það bara lakkrísríhab og pulsusöknuður...