er á íslandi, brjálað stuð, mikill lakkrís og fullt af puuuulsum.
laugardagur, júlí 30, 2005
þriðjudagur, júlí 19, 2005
tommi gunn var að spila í hljómsveitakeppni á "le swimming" í gær og hans hljómsveit vann! jess!
nú komast þeir í úrslit og þeir sem vinna þar komast með í vans warped tour en þar má finna bönd eins og "simple plan", "alexis on fire", "billy talent" og ég veit ekki hvað og hvað...þessi túr virkar þannig að það eru bara tónleikar út um alla n-ameríku með einhverri blöndu af þessum böndum. það er ekkert víst að þeir vinni keppnina en það væri ansi kúl, þeir eru líka orðnir alveg hrikalega góðir og eiginlega vandræðalegt í gær bara hvað þeir voru miklu betri en aðrar hljómsveitir þarna. keep up the good work "shot while hunting"!
á morgun leggjum við af stað til íslands og mætum að morgni fimmtudags. verið tilbúin með saltlakkrís og pulsur, ég er orðin svöng.
sunnudagur, júlí 17, 2005
það var rosalega gaman í gær. þrátt fyrir tæknilega örðugleika í byrjun gekk þetta alveg ágætlega. áhorfendurnir þurftu nefnilega að bíða eftir að hljóðið kæmist í lag í ábyggilega meira en klukkutíma í rúmlega þrjátíu stiga hita og rakamollu. hljóðmennirnir voru ekki alveg að standa sig!
það var áætlað að það yrði um 15þús manns þarna þegar mest var en ég veit ekkert hvort það er rétt eða ekki. það var slatti að fólki þarna og mikið af fólki á svæðinu í kring en tónleikunum var varpað á skjá fyrir ofan sviðið og tónlistin barst ábyggilega eitthvað um svæðið.
við fengum "vip treatment" og allt...hehe...fengum svona miða sem á stóð "f.i.p" sem þýðir víst vip á frönsku. svo fengum við sushi og kökur og drykki og meira að segja NUDD...jess! á sviðinu voru svo menn sem gerðu allt fyrir okkur, náðu í stóla og skiluðu þeim og komu með vatnsflöskur og handklæði þegar við vildum. maður gæti alveg vanist þessu! :-)
laugardagur, júlí 16, 2005
í kvöld eru tónleikar með francescu og verða það útitónleikar í longueuil. þetta er hluti af "international percussion festival" sem er ný hátíð og þess vegna alls ekki víst að það verði mikið af fólki. á eftir okkur koma svo þekktir trommubræður, þeir diouf bræður, en þeir eiga víst stóran aðdáendahóp og vonandi að einhverjir af þeim mæti líka á okkar tónleika. :-)
og eitt að lokum...
til hamingju tommi bró! :-)
föstudagur, júlí 15, 2005
ég var að reyna að breyta útlitinu á síðunni en ég held að það hafi mistekist. veit ekki hvað var að gerast hjá blogger...held ég hafi sent hann í endalausa lykkju!
annars er bara sól úti og tími fyrir ís.
laugardagur, júlí 02, 2005
ég nenni bara ekkert að blogga þessa dagana...alltaf sól úti og sólbaðsveður og ég búin að vera í rúminu síðustu daga bakveik. reyndar var það "shopping related incident" eins og tommi orðar það. ég var stödd í mátunarklefa að máta hlaupabuxur sem eiga að veita aðhald og voru þess vegna dáldið stífar og þurfti smá átak að komast í þær og auðvitað þurfti ég að toga eitthvað vitlaust í þær og fékk svona hrikalega í bakið að ég gat varla komið mér út úr búðinni. ég settist svo bara niður og hringdi í tomma sem kom og hálfbar mig út í leigubíl og heim. þetta var svo vont að það leið yfir mig af sársauka þegar tommi var að bera mig á klósettið morguninn eftir...hálfpathetic! nú eru liðnir nokkrir dagar síðan og ég er öll að koma til. fór til læknis og fékk verkjalyf og skipun að fara í röntgenmyndatöku af því að þetta lýsir sér eins og byrjun á brjósklosi...god damn!
í gær var canada day, og partý útum allt og flugeldar og kanadíski fáninn hvert sem litið var. reyndar sagði veðurmaðurinn í sjónvarpinu að það yrðu "natural fireworks" um kvöldið sem reyndist rétt hjá honum. við tommi ætluðum í bíltúr og í því augnabliki sem við ákváðum að fara út komu þrumur og eldingar og þegar við keyrðum útúr bílskúrnum rigndi svo mikið að ég hef aldrei séð annað eins! það var bókstaflega flóð á götunum og eldingar hægri vinstri...við keyrðum hringinn í kringum húsið og inn aftur bara! bíllinn varð hreinn á þessum hring svo þetta var ekki algjör fýluferð. hehe.
í dag var carifiesta niðrí bæ og partý og skrúðganga og fólk hálfbert að dansa við tilheyrandi karabíska tónlist. það er líka æðislegt veður, ekki of heitt aldrei þessu vant!
tommi fór í ræktina fyrr í dag og ég var úti á svölum í sólbaði þegar hann fór. svo þegar ég ætlaði inn á klósettið og að fá mér vatn þá kom ég að læstum dyrum. maðurinn læsti mig úti á svölum á sjöundu hæð! ég var þess vegna bara að dúsa í sólbaði þangað til hann kom heim. eins gott að ég var með símann út á svölum, annars hefði honum kannski dottið í hug að fara í græjubúðir eða eitthvað og ég orðið að rúsínu úti á svölum.




