héðan er ekki mikið að frétta þessa stundina...næstu tónleikar eru ekki fyrr en 16. júlí og þangað til er ekki mikið planað. ég þarf jú að æfa mig og ætla að taka upp einhver lög þannig að ég hef í sjálfu sér nóg að gera.
sumarblíðan er algjör hér. næstu daga er spáð sól og blíðu og síðustu daga hefur verið sól og blíða. ég er búin að nýta svalirnar ágætlega en á alltaf eftir að kaupa blóm til að setja þarna og gera huggulegt. svona er maður latur!
ég sit núna og bíð eftir pípara sem ætlar að gera við vatnsúttakið sem fer í þvottavélina. alltaf gaman að bíða. eða þannig.
það er komið vídeó á heimasíðuna hjá francescu og hægt að sjá augnablik í mig og lamiu ef þið hafið áhuga. það er líka hægt að heyra tónlistina. :-)



