í dag á pabbi afmæli! til hamingju með afmælið pabbi minn...og þú ert líka bestur. hehehe...
sunnudagur, maí 29, 2005
föstudagur, maí 27, 2005
miðvikudagur, maí 25, 2005
nú er svotil komið á hreint að ég verð syngjandi í sumar. ég fékk djobb sem bakraddasöngkona hjá söngkonu sem heitir francesca og söng með cirque du soleil í mörg ár og er nokkuð þekkt í n-ameríku. tónlistin hennar er dáldið furðuleg...stundum afríkuleg, stundum ítölsk, stundum geimveruleg. hún ásamt jean nokkrum semja sín eigin orð fyrir tónlistina svo textarnir þýða ekkert endilega. þetta er samt stórskemtilegt að syngja og búið að skrá átta tónleika í sumar víðs vegar um quebec og einhverja í ottawa líka held ég. stuð!
ég held bara að það verði sólbaðsveður í dag. ætli ég verði ekki bara úti á svölum í dag...!
la vie, c'est maintenant...
mánudagur, maí 23, 2005
flutt og komin á ról
loksins er maður að verða frískur eftir þetta vesen allt saman og farin að njóta þess að vera flutt. það eru ennþá pappakassar útum allt hérna og drasl en það smá saxast á þetta. við fengum okkur húsgögn á svalirnar í gær og getum núna farið í sólbað og borðað úti á svölum. gasalega huggulegt. verst bara að það á að rigna í dag!
tommi er á leiðinni til kaliforníu akkúrat núna. hann verður í viku þetta skiptið að gúglast með vinum sínum. ætli þeir gúgli ekki eitthvað afskaplega sniðugt...
hvaða djók var þetta með eurovision annars? ísland á örugglega met í að lenda oftast í 16. sæti.
við fórum á "star wars iii - revenge of the sith" í gær og líkaði bara vel. ég reyndar dottaði aðeins í byrjuninni en það var bara sökum þreytu. í bíóinu sáum við líka hann mulder...eða david duchovny...ætli hann sé að leika í bíómynd hérna?
fimmtudagur, maí 19, 2005
pensilínofnæmi!
núna er ég í vinnunni með tomma. mig langaði ekki að vera ein heima með pensilínofnæmi! já, ég fékk sumsé svaðalegt ofnæmi fyrir pensilíninu sem ég þurfti að taka útaf endajöxlunum og er öll í útbrotum, með bólginn háls og kláða...ég hef aldrei á ævinni fengið svona hrikaleg útbrot...það stefnir í að þau verði samvaxin og ég verði bara rauð með nokkra hvíta bletti!!! ömurlegt.
íbúðin er frábær annars og bara verður flottari og flottari. ég set myndir þegar ég er komin í betra form og internetið komið heim.
over and out.
stína rauðdepla
föstudagur, maí 13, 2005
svakalega ætlar þetta að taka langan tíma að jafna sig! ég er varla farin að geta talað ennþá...úff púff. þeir sem hafa farið í svona endajaxlatöku þar sem allir voru skornir úr í einu, þ.e jaxlarnir komu aldrei upp/niður...hvað tók þetta langan tíma hjá ykkur (gerandi ráð fyrir að einhver sem les þessa síðu hafi farið í slíkt)? ég er allavega orðin þreytt á þessu og svekkt yfir því að finna ekki sum brögð ennþá og var að lesa á netinu að það væri hætta á því að það væri varanlegt. ekki væri það nú gott!
við flytjum á morgun. þeir klára að mála snemma á morgun og svo fáum við bíl um þrjúleytið held ég. ég er að setja ofan í kassa þessa stundina og er að klára eldhúsið. stuð.
þriðjudagur, maí 10, 2005
endajaxlar!
mikið svakalega er leiðinlegt að fara í endajaxlatöku. ég fór í eina slíka í gær og lét bara fjarlæga allt draslið. mínir voru nefnilega hvorki komnir upp né niður og þurfti því að skera þá alla í burtu. ég fór sem betur fer til sérfræðings sem sérhæfir sig í akkúrat svona skurðum og gerði hann þetta fljótt og vel. reyndar gekk illa að deyfa mig og ég fékk ábyggilega tuttugu sprautur í kjaftinn á mér og svo var einn jaxlinn svo fastur og djúpt niðri að það þurfti að bora hann að hluta til úr og deyfingin var ekki alveg næg þ.a það var smá sárt og dálítil átök. þetta tók samt alveg svakalega stuttan tíma og maðurinn var rosalega snöggur að sauma fyrir götin. svo þegar ég ætlaði að standa upp þurfti náttúrulega að líða aðeins yfir mig (minnsta sem ég gat gert) og þá lét hann mig blása í bréfpoka og skvetti á mig vatni. sérlega hressandi allt saman. svo er ég búin að vera mállaus síðan í gær og mjög vönkuð eitthvað og slöpp. ég fór samt að læknisráði og notaði frosið grænmeti í gríð og erg í gær og þess vegna er ég ekkert voðalega bólgin. takk fyrir það!
nú er verið að mála íbúðina okkar og verður það líklega búið í vikulok. við getum þá vonandi flutt bara um helgina. það væri óskandi. :-)
miðvikudagur, maí 04, 2005
þriðjudagur, maí 03, 2005
við tommi fórum í bíltúr um daginn og keyptum okkur ísskáp og eldavél. á leiðinni tók ég myndir af tveimur fyndnum stöðum. annar staðurinn heitir woodstock og hinn heitir ansi skrýtnu nafni sem sést ekki svo vel á myndinni en fólk getur giskað hvað staðurinn heitir.
annars er bara allt fínt...fyrir utan að ég er að fá endajaxl og það er voooooooooooooooooooooooooooooooooooooont!!! ég þarf að láta skera þá úr og ræturnar eru beyglaðar og hvaðeina. maður hefur heyrt svo margar hryllingssögur af svona endajaxlaveseni og ég er bara ekki í stuði fyrir þetta. svekk.



