Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

fimmtudagur, apríl 28, 2005

löglegir íbúðareigendur!

í dag skrifuðum við undir eignaskipti og afhentum stóra ávísun til löggilda fasteignasalans. við erum því orðnir íbúðareigendur og allt klappað og klárt. jess!

hér eru þrjár myndir í viðbót:
stiginn upp
gangurinn
svefnherbergi

við komumst svo að því í dag þegar við fórum og skoðuðum íbúðina að það er hægt að fara út á svalir og upp stiga á lítinn pall þar sem sést yfir alla borgina, sunnan fjallsins. ekki ónýtt útsýni það!

miðvikudagur, apríl 27, 2005

í dag á svanhildur anja vinkona mín afmæli og óska ég henni til hamingju og góðu gengi í prófum sem öðru. gratulerar!

hér hjá mér er hellidemba ennþá og ekki líklegt að það stytti upp á næstunni. ég fékk þar af leiðandi að kaupa mér guðdómlega kápu/frakka...sem voru eiginlega verðlaun fyrir prófin og fyrir að vera dugleg og góð stelpa. heheh. monsieur google fær þakkir mínar fyrir. ;-)

ég er sumsé búin í prófum og búin með öll verkefni og farin að koma mér í flutningagírinn. við förum og skrifum undir í fyrramálið og vonandi að það gangi að óskum. þangað til þá bið ég bara að heilsa og nú andar suðrið sæla vindum þýðum og hvaðeina...

stínan

laugardagur, apríl 23, 2005

that shit is tight!

það jafnast ekkert á við að hrista rassinn við góða tónlist og það er ekki hægt að neita því að viss tónlist er betur til þess fallin en önnur. r&b og hip-hop er málið þegar kemur að rassahristingum. nó dát abát itt.
nokkur af mínum uppáhaldslögum i r&b, hip-hop geiranum...cheezy, ég þori samt að veðja að flestir hrista rassinn, a.m.k í laumi við þessi lög. ;-)

beautiful - Snoop Dogg featuring Pharrell Williams and Charlie Wilson
signs - Snoop Dogg featuring Justin Timberlake and Charlie Wilson (R&G, rythm and gangsta...snilld)
milk shake - Kelis
outkast á mörg góð lög líka...flestir þekkja hey ya.

hér er rigning og rok! um leið og ég er búin í prófum þá bara er hellt úr fötu á mann. einmitt þegar maður ætlaði í baby phat gallann með bling blingið niðrí bæ að hrista rassinn...hahaha...nei segi nú svona.

aight! fo sho!

föstudagur, apríl 22, 2005

ég var að prófa þetta:


http://www.dcs.st-and.ac.uk/~morph/Transformer/index.html


skellti inn myndinni af mér sem ég er með á messengernum og fékk út hvernig ég verð gömul, hvernig ég var sem unglingur og sem maður. ég verð nú bara að segja að unglingurinn er nærri lagi, maðurinn er merkilega líkur magga bró fyrir utan varirnar og gamla konan er nú bara nokkuð hugguleg. hvað finnst ykkur?

stína gömul
stína unglingur
stinni stuð
stina afro-caribean
stina indian

miðvikudagur, apríl 20, 2005

stóra baðherbergið í íbúðinni... þemað verður mediterranean spa. ójá.

þriðjudagur, apríl 19, 2005

var ég búin að segja ykkur að ég er lasin? hehh...og tommi gunn er á leiðinni til íslands. ég er aaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaleeeeeeeeeeeeeeeeeein heima. fnuuuuuus!

ég fór samt í sight-singing og keyboard skills próf í dag og fékk 91%...jeeeesss! ég held að kennarinn hafi bara vorkennt mér svona mikið. held ég hafi verið hálfaulaleg með hor í nös og hálsríg. :-/

ég er veik. það er leiðinlegt. ójá.

vorið er búið. það var í svona þrjá daga. nú er bara komið sumar og orðið of heitt hérna inni...merkilegt þetta veðurfar hérna. grasið er ennþá gult og engin laufblöð á trjánum en samt bongóblíða og allir á sandölum. fríkað.

kannski ég skelli inn einni mynd af nýju íbúðinni...bara svona til að koma mér í stuð. voila!

sunnudagur, apríl 17, 2005

22°C and rising...

laugardagur, apríl 16, 2005

það er 20°C hjá mér! liggaliggalái!!!

föstudagur, apríl 15, 2005

jæja, er ekki kominn tími til að skella inn nýjum lögum?

ég fékk upptökur af tónleikum um daginn sem ég söng á og ákvað að búa til mp3 fæla úr þeim...fjögur lög í allt.

fyrsta lagið heitir "all blues" og er dúett með mér og japanskri stelpu. við syngjum báðar byrjunina og svo syng ég engin orð heldur bara dabadúbídei.

All Blues

næst er "take five" sem flestir kannast við. með mér er "rhythm section" sem saman stendur af trommum, bassa og píanói.

Take Five

að lokum eru tvö íslensk lög sem allir þekkja...ég náði ekki að læra textann fyrir öll erindin í "krummi svaf" hehe...og það heyrist furðulega í hristunni í "tunglið tunglið taktu mig"

Krummi Svaf í Klettagjá

Tunglið Tunglið Taktu Mig

enjoy!

miðvikudagur, apríl 13, 2005

nú er ég byrjuð í próflestri eina ferðina enn...síðasta skiptið á þessu skólaári. thank god! ég klára 22. apríl og hvað tekur við þá veit enginn. ég held í vonina að finna mér hljómsveit, búin að vera að reyna við nokkra tónlistarmenn upp á síðkastið og nokkrir sem koma til greina. það kemur allt saman í ljós þegar þessi blessuðu próf eru búin.

tommi fer til íslands í næstu viku og skilur mig eftir eina í prófum...sem er bara ágætt af því að þá er minni truflun hérna heima fyrir. þegar hann kemur aftur heim þá förum við á fullt í flutninga og þegar það er búið ætlum við bara að slappa af úti á svölunum okkar með kokteil í annarri (óáfengan að sjálfsögðu) og sólarvörnina í hinni. jeeeeeehhh!

við vorum annars að klára kanadísku skattaskýrsluna okkar og búin að senda hana. og skilatíminn er ekki fyrr en eftir hálfan mánuð!

hér er annars komið vor! eftir viku er spáð 23°C hita...akkúrat þegar tommi fer til íslands og ég verð byrjuð í prófum. gott að vita að vorprófaveðrið hérna í kanada er svipað og annars staðar...alltof gott!!!

laugardagur, apríl 09, 2005

argghhh! ég gleymdi myndavél í gær, síðasta sjóið og rosastuð og fullt af kodak mómentum. sýningin gekk bara svakalega vel, þ.e síðasta sýningin. tommi mætti og mun fleira fólk en á hinar tvær sýningarnar. svo eftir allt saman fórum við nokkur á barinn og ég svolgraði í mig kók og vatni...hehe...og ég er vöknuð, klukkan er ekki nema hálfátta hér! seinna í dag fer svo hljómsveitin hans tomma gunn að taka upp og það vill svo skemmtilega til að þeir eru að fara að taka upp á sama stað og ég var að syngja í gær!

skólinn er að verða búinn hjá mér. síðustu tímarnir verða á mánudaginn og svo hefst próftímabilið. ég fer í nokkur próf, það síðasta 22. apríl að mig minnir. eftir það verður bara farið á fullt í að flytja í nýju íbúðina okkar og koma okkur fyrir þar. jíha! ekki að ég sé neitt svakalega spennt fyrir flutningunum sjálfum, er eiginlega komin með dálitla leið á að flytja. við tommi höfum flutt alltof oft síðustu árin, árlegur viðburður að meðaltali held ég.

gleðilegan laugardag! njótið helgarinnar :-)

þriðjudagur, apríl 05, 2005

-----------------------------
April 6, 7 and 8 // 8:00 p.m.
Concordia University Department of Music presents
THE GOSPEL AT COLONUS
Students directed by Jeri Brown. Adapted by Lee Breuer, music composed and arranged by Bob Telson.
Tickets at the door only: $5 general admission, free for students with ID.
-----------------------------

ef einhver er í nágrenninu...hehhh...allavega er ég í kórnum í þessu sjói. vei!

föstudagur, apríl 01, 2005

þá er kominn apríl og ekkert verið að gabba með það!
tónleikarnir í gær voru mjög skemmtilegir og við hjónin stóðum okkur með prýði í að kynna íslenska menningu. ég söng svo líka "take five" (með tilheyrandi improvisation og útúrsnúningum) og "all blues" (dúett með japanskri stelpu sem söng orðin en ég söng aðallega dilljadúbadíra o.s.frv.) og gekk það bara ansi vel líka. undirspilið samanstóð af píanóleikara, bassaleikara og trommuleikara...sumsé heil "rhythm section" sem er miiiiiiiiiiiiklu skemmtilegra heldur en að syngja karaókí. við fengum meira að segja gott klapp og hrós frá kennurum og viðstöddum. jess!

páskarnir voru mjög fínir. ég eldaði lambakjöt og tommi spilaði playstation. við slöppuðum af, fórum í búðaráp (já, búðir eru opnar hér um páskana eins og aðra daga) og borðuðum góðan mat. sumsé alveg snilldarfrí í rólegheitum bara.