GLEÐILEGA PÁSKA!
föstudagurinn langi hefur yfirleitt verið ógurlega leiðinlegur dagur. hann ætlar aldrei að enda og svo virðist sem nammiþörf og almenn verslunarþörf magnist upp úr öllu valdi þennan eina dag ársins, akkúrat þegar allt er lokað (nema þessi eina eða tvær sjoppur). það er ekki sami bragur á hér í kanada. búðir eru almennt opnar og fólk yfirleitt í hátíðarskapi, fegið yfir því að fá langa helgi svona þegar farið er að vora. hér heitir þetta heldur ekki föstudagurinn langi heldur "good friday". ég er að hugsa um að tileinka mér bara þetta viðhorf...að þetta sé föstudagurinn góði. föstudagar eru nú yfirleitt góðir en ætli maður reyni ekki bara að hafa þennan alveg sérstaklega góðan. :-)
jæja, búin að liggja í leti í allan dag þó að ég hafi ekki mátt vera að því. ég bara nenni engu í dag. er það ekki bara allt í lagi?
mábarekkiveraððíaðblogga
já og ég vil líka koma því á framfæri að google er búið að launcha nýrri desktopleit. hana má finna hér... ég mæli með því að fólk tékki á plög-inum líka, íslendingar eru að ná heimsyfirráðum! hehehehe
það er ennþá vetur í montreal og ég er orðin óþolinmóð!
stína stendur sig ekki í blogginu!