Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

þriðjudagur, febrúar 22, 2005

búin að setja inn myndir frá mont tremblant sem voru teknar með símanum mínum. enjoy!

mánudagur, febrúar 21, 2005

mont tremblant var æææææææææði!
við ákváðum að fara í snjósleðaferð og vorum í rúma tvo tíma að snjósleðast um skóginn, á vötnum, upp og niður brekkur og útum allt. veðrið var yndislegt, sólskin og stillt og ekki alltof kalt. á leiðinni sáum við dádýr og tókum líka nokkrar myndir sem ég á eftir að skella í tölvuna. ég var með eigin snjósleða og komst alveg upp í 60 á honum...jeeeeeeeeeeeee!

eftir snjósleðaferðina fórum við svo í spa með svona hammam böðum...sumsé volgri gufu. við sátum og slöppuðum af þar í um hálftíma og fórum svo bæði í nudd...draumur í dós. það var svo fallegt þarna, manni leið hálfpartinn eins og maður væri kominn í eitthvað exótískt land langt í burtu.

við gistum á fínu hóteli í hjarta tremblant...en sváfum ekki alveg nógu vel útaf einhverjum partýglöðum unglingum í næstu herbergjum. það er nefnilega spring break núna og ameríkanarnir mæta til quebec að skemmta sér.

laugardagur, febrúar 19, 2005

jeeeeeeeesssssssss!

við erum að fara til mont tremblant á morgun! bara í stutta ferð útúr bænum. ohhhh...ég hlakka svakalega til. ætli við skellum okkur ekki á sleða eða eitthvað, jafnvel snjósleða. jú never nó.

:-)

ég fer í fríið...ég fer í fríið...

núna er sumsé spring-break hjá mér. fræðilega er þetta lærdómsfrí af því að í þarnæstu viku verða einhver próf en ég ætla samt að nota helgina í afslöppun og skemmtilegheit. ef ég fæ tomma til að líta upp úr google í augnablik...hehehe...

síðasta vika var annasöm. ég fór í fjögur próf og stóð mig bara ágætlega. svo sungum við tommi og spiluðum á þorrablóti í gær. þorrablótið hér er yfirleitt með öðru sniði en maður er vanur. það er víst bannað að flytja inn súrmatinn en hákarlinn var þarna og ýmislegt sem vestur-íslendingarnir og þeir sem búa hérna koma með. mikið af öldruðu fólki af skandinavískum ættum í bland við fólk sem er nýflutt hingað. skrautleg samkoma eiginlega en það var gaman að hitta þetta fólk og kynnast nýjum íslendingum í montreal.
ég bakaði pönnsur og mætti með hlass af þeim en auðvitað kláruðust þær!

ég hef ekki mikið meira að segja í bili. hmm... er ekki konudagurinn á morgun?

mánudagur, febrúar 14, 2005

gleðilegan valentínusardag!

föstudagur, febrúar 11, 2005

hljómsveitin hans tomma er búin að setja tvö ný lög á síðuna sína. ógeðslega flott.
tzjékk itt át

mánudagur, febrúar 07, 2005

the man is back in black.

við erum búin að vera gift í hálft ár. húrra fyrir því! :-)

hér er hitabylgja. snjórinn er svo gott sem farinn og ég fór út án húfu í dag. undur og stórmerki gerast enn.

helgin fór að mestu leyti í afslöppun. ég bakaði pönnukökur og við borðuðum steik og önd. ekki amalegt heimilishald á minni. mér tókst líka að vera með hausverk alla dagana. en ég dugleg.

ég biðst bara afsökunar á þessu leiðinlega bloggi mínu. ég hef bara ekkert merkilegt að segja. ojæja. vonandi rætist úr því seinna meir.

óver end át.

fimmtudagur, febrúar 03, 2005

í gær söng ég á tónleikum með jazzkórnum mínum. þetta voru tónleikaðir tileinkaðir skáldinu langston hughes og tónskáldinu dave brubeck. það var rosastuð enda fékk ég að standa fremst í öllum lögunum...hehehe...þetta virkar nefnilega þannig að það eru tveir um míkrafón og hópnum er ekki raðað upp í svona týpískar kórstellingar. ég var líka með svo fallega eyrnalokka sem hún britta gaf mér...

kennarinn minn hún jeri var að fá verðlaun fyrir "lifetime achievement", martin luther king verðlaun einhver...ekki amalegt það. hún syngur líka alveg óóóótrúlega vel, blandar saman klassískri tækni og jazz og er með hrikalegt raddsvið. hún söng á tónleikunum í gær og það var svooo flott, maður bara fór næstum að gráta.

ég er ennþá ein heima. tommi svaf á mirage hótelinu í las vegas í nótt! ósanngjarnt! hehe.