Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

mánudagur, janúar 31, 2005

æm só rónrí.

fór í hárgreiðslu um helgina. æðislegt. ég eeeeeeeeeeelska að láta dútla svona við mig. reyndar er hann duane dáldið harðhentur stundum en ég læt mig hafa það.

lærði um soul í jazztíma í dag. komst að því að ég hef líklega vikingsoul í mér. hvernig haga íslendingar sér annars sérstaklega miðað við aðrar þjóðir? þeir eru frakkir, tala hátt og alltaf í reddingum...hvað gera íslendingar þegar þeir þjást, elska, verða reiðir? eða svíar? við horfðum á gospel at colonus sem gerist í african-american kirkju og allir æðislega soulful...ég finn þetta bara ekki í minni íslensk-sænsku sál. íslendingar eru ekkert voðalega mikið fyrir að tjá tilfinningar sínar...eða hvað??? ég hef reyndar nokkrum sinnum fengið kommentið: "you've got soul" eftir tónleika...æ dónt nó.

tommi er í kaliforníu og fer til las vegas með google. god damn! eins gott að ég fór til new york. annars hefði verið ójafnvægi í skemmtiferðum okkar hjóna. hehhe...

fimmtudagur, janúar 27, 2005

jáááááátsa!

þá eru tommarnir báðir búnir að yfirgefa mig og eftir sit ég ein í frosthörkunni hér í montreal.

við tommi bró hittumst í NY fyrir viku síðan og skemmtum okkur konunglega í þessari mjög svo stóru borg. við byrjuðum náttúrulega á því að fara upp í empire state bygginguna og skelltum okkur í útsýnisferð um uptown NY. svo skall á "blizzard" á new york mælikvarða og allt fór í hönk...á íslenskum og montreaölskum mælikvarða var þetta snjókoma og lítið meira en það. við tommi létum þetta ekki á okkur fá og skoðuðum bara í þeim mun fleiri búðir og höfðum gaman af. i heart new york.

svo sáum við celebrity. michael rosenbaum, best þekktur úr smallville þáttunum var í barney's að versla og máta um leið og við. tommi bró var inni í mátunarklefa og michael við hliðina...með svona personal shopper með sér. svo hvarf personal shopperinn eitthvað og þá snýr michael sér að mér og spyr hvort jakkinn og bolurinn sem hann var í passaði saman og ég gaf honum mjög stylish ráð...! svo fór hann úr að ofan og var þarna á sixpakkanum eins og ekkert væri. hehehe...verst að síminn minn var orðinn batteríslaus svo ég gat ekki tekið mynd af honum hálfberum.

ég gat þó tekið nokkrar myndir og þær má finna undir þessum slóða

stuuuuuuuuuuuuuuuð

já og við skemmtum okkur svo sannarlega í saks, bergdorf goodman, bloomies, barney's og á madison av., fifth av. og í soho...gvööööööööð hvað það er gaman að skoða í búðir.

þriðjudagur, janúar 18, 2005

nú er úti veður kalt verður allt að klaka...

ég er eitthvað voðalega bissí núna...svo mikið að gera í skólanum og mín á leið til new york og svona. ekki mikill tími í blogg...hehehe...

ég þarf að skrifa bassalínu fyrir blúslag og æfa tvö lög fyrir morgundaginn. og taka til! og ég sem er svoooo syyyyyyyfjuð. sveiattan!

getur einhver sagt mér af hverju svona margar ljóshærðar konur (sérstaklega á íslandi) lita augnabrúnirnar á sér dökkbrúnar eða svartar? það er mjög kjánalegt!

peace

laugardagur, janúar 15, 2005

ég var að horfa á klippur úr idol þáttunum íslensku. ég er alltaf svo hissa á því hvað það er gegnumgangandi lélegur enskur hreimur hjá fólki. það er nú bara stór hluti af því að hafa tóneyra og geta túlkað tónlist að spá í og æfa hreiminn...kannski var ætlunin hjá fólkinu að vera með sterkan íslenskan hreim? ég veit það ekki. mér finnst þetta bara skipta dálitlu máli ef fólk er að syngja á annarri tungu en móðurmálinu yfir höfuð. hvað finnst ykkur?
annars er gaman að sjá þetta en dáldið svekk að sjá ekki hvað dómararnir segja.

föstudagur, janúar 14, 2005

þeir sem eru eitthvað kunnugir í new york geta kannski frætt mig um góða veitingastaði sem við tommi bró getum farið á. ég hef sjálf farið tvisvar...eiginlega þrisvar en er ekki mjög vön ennþá. kæru lesendur, endilega komið með skemmtilegar ábendingar ef þið hafið einhverjar. merci!

fimmtudagur, janúar 13, 2005

í gær var -15 og í dag var +7!!!

we're having a heat wave...og ég svitnaði svakalega í strætónum í dag. guði sé lof fyrir svitalyktareyði. hallelúja!

þriðjudagur, janúar 11, 2005

er ekki alveg bráðupplagt að skella inn nokkrum áramótaheitum líka?

ókei. þetta árið ætla ég að:

- hætta að gera ráð fyrir að aðrir syngi betur en ég áður en ég heyri í þeim

- æfa ný lög almennilega og amk eitt á viku

- semja fleiri lög

- kaupa minna drasl

- stuðla að ást og friði í heiminum

- hreyfa mig reglulega

- stofna hljómsveit og sigra heiminn!

takk takk

ég tók nokkrar myndir í skólanum í dag...hmmm...

hér má skoða þær.

takk fyrir

mánudagur, janúar 10, 2005

ég þoli ekki nefkvef. óþolandi að geta ekki sungið almennilega!

ekki mikið að frétta af mér svosem. skólinn er byrjaður og ég er bara að læra og fara í skólann...lítið annað sem gerist. svo er bara hörkuvetur með snjó og frosti hérna í montreal. miiiiiiiiiiiiikið slabb úti á götum og snjófjöll farin að hlaðast upp hvar sem finnst laust pláss.

það er reyndar eitt tilhlökkunarefni sem vert er að minnast á. ég og tommi bró ætlum að hittast í new york í mánuðinum og mála bæinn rauðan yfir eins og eina helgi. bró ætlar svo að koma í heimsókn til montreal og fíla frostið aðeins. húrra fyrir því!

sunnudagur, janúar 09, 2005

kennarinn minn jeri og nemendurnir liz, geri og valerie...hér

vinkona mín hún rica er alltaf að hrista rassinn með mér á æfingum. jeeeee

laugardagur, janúar 08, 2005

ómægod, jennifer og brad eru að skilja! væjóvæjóvæjó!

fimmtudagur, janúar 06, 2005

til hamingju með afmælið maggi bró! og gleðilegan þrettánda.

húrra fyrir því.

takk

miðvikudagur, janúar 05, 2005

kjamms!
við fengum pönnukökupönnu í jólagjöf og allar græjur með (spaða, uppskrift, viskastykki og disk)...ég var að prófa stöffið. mér fannst tilvalið að fagna góðu gengi í skólanum með því að baka pönnsur. það gerði mamma alltaf. :-)

er þá ekki bara komið nýtt ár?
til hamingju með 2005. 2004 var stórmerkilegt og viðburðaríkt. takk fyrir það.

nú erum við unghjónin komin aftur "heim" til montreal og líður bara ágætlega með það. jólatörnin búin þetta skiptið og gekk flest allt fyrir sig áfallalaust. við þökkum þeim sem hýstu okkur og þeim sem nenntu að hitta okkur. við biðjum þá afsökunar sem við heimsóttum ekki og hringdum ekki í en það verður bara alltaf svo mikið um að vera þennan tíma ársins að maður nær bara rétt að fara í jólaboðin og keyra fram og til baka á reykjanesbrautinni. við bætum úr þessu í næstu ferð. i hope.

ferðin heim gekk ekki eins vel og maður hefði vonað. flugleiðum seinkaði sem varð til þess að við misstum af montrealvélinni frá boston. við bókuðum nýtt flug hjá air canada klukkan 6:20 næsta morgun og hæstánægð með að þurfa ekkert að borga fyrir það. hins vegar þurftum við að borga fyrir nótt á hóteli í boston af því að kjáninn ég bókaði air canada á netinu en ekki í gegnum flugleiðir. allt í lagi svosem af því að við fengum góðan díl í gegnum flugleiðir og fínt hótel. svo fínt að við sváfum yfir okkur þrátt fyrir tvær vekjaraklukkur. enn meiri kjáninn ég stillti símann minn á pm í stað am og hótelvekjaraklukkan var of flókin fyrir svona verkfræðing eins og mig. við sumsé misstum af fluginu til montreal og þurftum að bóka enn eitt flugið...svo kom seinna í ljós að hætt var við flugið klukkan 6:20 vegna bilunar! við fórum í loftið eitthvað eftir átta og þegar við lentum í montreal vantaði eina töskuna okkar!! sem betur fer fengum við ágætan leigubíl og komumst heil á húfi heim. en hvar er taskan?

ég fékk síma frá tomma gunn í jólagjöf og get nú tekið myndir hvenær sem er. jíha.
hér er afraksturinn...

ég hjá skólanum í dag
jazztími í skólanum
tommi og júlía á gamlárskvöld
ég og tommi bró á tónleikum
ég að bíða á flugvellinum í boston

hey já, ég fékk A í öllu í skólanum. vei.