Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

þriðjudagur, nóvember 15, 2005

it's official!

það er kominn vetur. í morgun þegar ég leit út um gluggan var byrjað að snjóa og það snjóar enn. ég hefði getað sagt sjálfri mér það í gær þegar mígrenið lagðist yfir mig að veðrið myndi breytast...ég hélt satt best að segja að það myndi rigna. yfir jörðinni er nú þunn hvít slæða en mig grunar að hún verði þar ekki lengi, þrumuveður í aðsigi og hitabreytingar meðferðis.

við erum búin að bóka far til íslandsins góða um jólin. áður en við leggjum í það ferðalag ætlum við rétt að skreppa jafnlangt ef ekki lengra vestur, til kaliforníu að heimsækja google. ég veit ekki alveg hvað ég á að gera á meðan tommi er í vinnunni, góðar hugmyndir vel þegnar (ég er komin með göngutúra, ferðir til san fran og spa- hugmyndir).

hér er ein skemmtileg mynd í lokin af mér að vera hissa í síðasta mánuði þegar aðrir reyndu að vera sem óhugnalegastir.