Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

sunnudagur, október 09, 2005

núna er thanksgiving í kanada. í tilefni af því var okkur boðið í matarboð heim til íslenskra hjóna sem búa hérna og við fengum þvílíkar kræsingar! kalkúnn, fylling, brúnaðar kartöflur, sweet potatoes, baunir, gulrætur, salat, sósa, heimatilbúið rauðkál, kökur, ís, snakk...þetta var alveg svakaleg veisla og ég hef bara aldrei smakkað eins góðan kalkún! við vorum ansi södd eftir máltíðina en létum það samt ekki aftra okkur í fimbulfambi og actionary...svakastuð hjá okkur í gær.

ég er búin að vera á fullu í skólanum og nú er ég komin með "minn" hóp í improv1 tímunum...við erum sumsé sjö manna band: trommur, gítar, bassi, bassaklarinett, þverflauta, fiðla og ég sé um sönginn. við erum að æfa nokkur lög og spilum á tónleikum í nóvember og svo líklega í febrúar og maí. þetta verður mjög skemmtilegt en við erum ekki alveg búin að hrista saman hópinn og spila okkur saman, það tekur smá tíma.

sá sem semur tónlistina með henni francescu samdi lag fyrir mig um daginn og ég er núna að reyna að semja texta við það og æfa fyrir upptöku. við sjáum til hvað gerist með það.

þegar ég var að labba heim til hans um daginn tók ég mynd á förnum vegi...þetta er alveg týpísk gata í austurborginni þar sem frönsk menning er allsráðandi. það sést ekki alveg á myndinni en þarna situr fólk úti á svölum með rauðvínsglös og sötrar og kjaftar og borðar ábyggilega osta með...þarna í gluggunum mátti svo sjá forvitnar kisur, striga og pensla, hljóðfæri og ýmiss konar húsgögn...þetta var um kvöldmatarleytið þannig að matarlyktin ilmaði um allt, og af henni að dæma var verið að elda alls kyns exótískan mat! (p.s það er hægt að smella á myndina til að sjá hana stækkaða)