fórum í afmæli í gær á erótískum dansstað! kærasta stráks sem er með mér í skólanum ákvað að hafa óvænt (surprise) partý fyrir hann inni á slíkum stað...sem var ansi fyndið bara. við tommi skelltum okkur bara, enda ofsalega liberal skandinavar á ferðinni. okkur fannst dömurnar með eindæmum fýldar á svip og flestar þeirra kunnu nú ekkert að dansa...löbbuðu í fýlu um sviðið á alltof háum skóm. við fórum snemma að geispa. svo voru þarna nokkrir steggir og það var einhver seremónía sem þeir fóru í gegnum á sviðinu sem var með vandræðalegri hlutum sem ég hef séð! þeir voru klæddir úr og nærbuxurnar þeirra rifnar og svo voru nokkrar dömur að krota á þá með stórum pennum og einn steggurinn lenti í því óláni að láta draga niðrum sig nærbuxurnar uppi á sviðinu. eftir það atvik sáust handahreyfingar á hverju borði sem gáfu til kynna að maðurinn hefði verið undir meðallagi á vissum sviðum...öhömm...
þetta var áhugaverð reynsla og verð ég nú að segja að dömur á skemmtistöðum á t.d íslandi eru meira spennandi en gellurnar sem voru að dansa þarna...þær brosa allavega!!

1 Comments:
ertu að meina á venjulegum skemmtistöðum á Íslandi? ef svo er... þá eru þær hættar að brosa og kjötsvipurinn er tekinn yfir!!
Sendu inn athugasemd
<< Home