Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

miðvikudagur, ágúst 24, 2005

takk allir fyrir afmæliskveðjurnar!

ég átti mjög góðan dag...fékk french toast með ávöxtum í morgunmat, súkkulaðibombuköku og gítarspil og fór svo með tomma á globe um kvöldið...algjör lúxus. á föstudagskvöldið verður svo partý hérna og allir sem lesa þessa síðu mega koma! nú þarf ég bara að klára að taka til og búa til eitthvað að borða...hehhh...

það eru víst tónleikar hjá mér á morgun. ég misskildi planið eitthvað og hélt að þeir væru á laugardaginn. well, það er ágætt af því að þá get ég orðið alveg ógeeeeeeeeeeeeeeeeeeesliga full á föstudaginn...hehh...af kóki og spræti og jafnvel eplasíder. :-D ekki nema einhver kaupi dom perignon eða cristal, þá skal ég smakka...hehehe...kostar ekki flaskan annars tugi þúsunda? er þetta ekki það sem rappararnir drekka?

við erum að passa kisu núna. jói og jóhanna heita eigendurnir og eru að fara að gifta sig á íslandi á laugardaginn. til hamingju með það!
þetta er ótrúleg kisa...hún er svo kelin að það er einum of stundum, hún stekkur alltaf upp í fangið á manni og kelar og nuddar sér alveg eins og hún eigi lífið að leysa. svo bítur hún tomma stundum í hökuna til að sýna honum hvað henni finnst hann æðislegur...haha...og svo hrýtur hún í þokkabót! núna liggur hún ofan á poka með servíettum og dóti í...hún varð bara að leggjast akkúrat ofan á þennan poka á miðju gólfinu! furðuleg dýr.