komin heim til montreal
við flugum í gær til boston og keyrðum svo hingað í einum rykk...í þrumuveðri og hellidembu. það bjargaði alveg ferðinni að geta hlustað á hljóðbók!
hér er heitt að vanda og blómin orðin ansi þyrst eftir tólf daga þurrk.
nú hefst undirbúningur undir tónleikahald ágústmánaðar, æfingar á fimmtu- og föstudag og tónleikar 12., 13., 17., 19. og 25. ágúst.
það verður frábært að sjá aðra hluta quebec og líka að syngja á útitónleikum í montreal.
hljómsveitin hans tomma er að gera það gott. þeir eru að fá spilun á einni útvarpsstöðinni hérna cism fm, sem spila "unsigned" bönd líka og er mjög vinsæl á meðan háskólastúdenta og ungs fólks hér. þeir eru meira að segja í 13. sæti á vinsældalista hjá þeim og bönd eins og "belle and sebastian" og "gorillaz" fyrir neðan þá...hehehe
á sunnudaginn eigum við tommi ársbrúðkaupsafmæli...okkur er boðið í partý á laugardaginn úti í sveit og erum svona að velta fyrir okkur að nýta tækifærið og fara kannski til mont tremblant í leiðinni. :-)
ég vil nota tækifærið og þakka öllum fyrir samveruna á íslandi. við náðum því miður ekki að hitta næstum því alla sem við ætluðum að hitta, ekki frekar en fyrri daginn! next time...
nú er það bara lakkrísríhab og pulsusöknuður...

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home