hér er alltof heitt og rakt. ég meinaða sko.
við áttum góðan brúðkaupsdag á sunnudaginn...fórum í "couples massage" í spa niðrí bæ, út að borða og í bíó. mjög kósí og afslappaður dagur hjá okkur. við gleymdum reyndar að horfa á vídeóupptökur af brúðkaupinu en við rifjuðum það upp og ekkert nema góðar minningar frá því. fyrir rúmri viku síðan átum við það sem eftir var af efstu kökunni í brúðartertunni sem var geymd í frystinum yfir árið. það er víst einhver hefð að borða kökuna ári eftir brúðkaupið og fannst okkur alveg tilvalið að hafa smá kaffi þarna rétt áður en við lögðum land undir fót og nýttum tækifærið til að smakka á ljúffengum lúxuskexkökum úr fortnum and mason frá honum tomma bró. kakan var ennþá svakalega góð og greinilegt að sissi bakari notaði góð hráefni í hana og vandaði vel til verks. :-)
í dag fór ég á æfingu upp úr átta í morgun og kom heim um fimmleytið...þá tók á móti mér stærðarinnar blómvöndur frá eiginmanninum. ég bara átti ekki til orð. og hann sem er með kvef og allt.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home