þá er ég komin heim úr tónleikaferðalagi helgarinnar. við keyrðum á föstudagsmorguninn til ile d'orleans þar sem við héldum tónleika í sal nefndum eftir leclerc. við gistum svo á litlu sveitahóteli þarna í nágrenninu þar sem gólfin voru skökk og brakaði í öllu. á laugardaginn var svo keyrt í fimm tíma norður til matane þar sem við héldum tónleika í húsi við sjóinn og gistum svo á gömlu hóteli sem er ekki ennþá í notkun en umboðsmaður hljómsveitarinnar á fjölskyldu þarna svo við fengum að vera þarna fyrir lítinn pening held ég. fyrri tónleikarnir gengu ekki nógu vel enda hljóðið á sviðinu hræðilegt en seinni tónleikarnir gengu eins og í sögu.
á morgun verðum við svo á útisviði niðrí miðbæ montreal í hádeginu og vonandi að sem flestir mæti. það er víst búið að bjóða alls kyns umboðsmönnum og fólki sem vill hugsanlega kaupa sjóið o.s.frv.
verst bara að ég er með kvef!

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home