Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

þriðjudagur, júlí 19, 2005

tommi gunn var að spila í hljómsveitakeppni á "le swimming" í gær og hans hljómsveit vann! jess!
nú komast þeir í úrslit og þeir sem vinna þar komast með í vans warped tour en þar má finna bönd eins og "simple plan", "alexis on fire", "billy talent" og ég veit ekki hvað og hvað...þessi túr virkar þannig að það eru bara tónleikar út um alla n-ameríku með einhverri blöndu af þessum böndum. það er ekkert víst að þeir vinni keppnina en það væri ansi kúl, þeir eru líka orðnir alveg hrikalega góðir og eiginlega vandræðalegt í gær bara hvað þeir voru miklu betri en aðrar hljómsveitir þarna. keep up the good work "shot while hunting"!

á morgun leggjum við af stað til íslands og mætum að morgni fimmtudags. verið tilbúin með saltlakkrís og pulsur, ég er orðin svöng.

2 Comments:

At 5:33 AM, Anonymous Nafnlaus said...

Gaman ad heyra ad thid gerid thetta svona gott í músikinni!
Góda ferd til Islands og kaerar kvedjur till allra thar!


Bjössi í Stockkhólmi

 
At 9:04 AM, Blogger Stina said...

hey, hæ bjössi!

takk fyrir, ég fékk póst frá eleonor, á bara eftir að svara henni. :-)
stuðkveðjur til stokkhólms.

 

Sendu inn athugasemd

<< Home