Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

laugardagur, júlí 02, 2005

ég nenni bara ekkert að blogga þessa dagana...alltaf sól úti og sólbaðsveður og ég búin að vera í rúminu síðustu daga bakveik. reyndar var það "shopping related incident" eins og tommi orðar það. ég var stödd í mátunarklefa að máta hlaupabuxur sem eiga að veita aðhald og voru þess vegna dáldið stífar og þurfti smá átak að komast í þær og auðvitað þurfti ég að toga eitthvað vitlaust í þær og fékk svona hrikalega í bakið að ég gat varla komið mér út úr búðinni. ég settist svo bara niður og hringdi í tomma sem kom og hálfbar mig út í leigubíl og heim. þetta var svo vont að það leið yfir mig af sársauka þegar tommi var að bera mig á klósettið morguninn eftir...hálfpathetic! nú eru liðnir nokkrir dagar síðan og ég er öll að koma til. fór til læknis og fékk verkjalyf og skipun að fara í röntgenmyndatöku af því að þetta lýsir sér eins og byrjun á brjósklosi...god damn!
í gær var canada day, og partý útum allt og flugeldar og kanadíski fáninn hvert sem litið var. reyndar sagði veðurmaðurinn í sjónvarpinu að það yrðu "natural fireworks" um kvöldið sem reyndist rétt hjá honum. við tommi ætluðum í bíltúr og í því augnabliki sem við ákváðum að fara út komu þrumur og eldingar og þegar við keyrðum útúr bílskúrnum rigndi svo mikið að ég hef aldrei séð annað eins! það var bókstaflega flóð á götunum og eldingar hægri vinstri...við keyrðum hringinn í kringum húsið og inn aftur bara! bíllinn varð hreinn á þessum hring svo þetta var ekki algjör fýluferð. hehe.
í dag var carifiesta niðrí bæ og partý og skrúðganga og fólk hálfbert að dansa við tilheyrandi karabíska tónlist. það er líka æðislegt veður, ekki of heitt aldrei þessu vant!
tommi fór í ræktina fyrr í dag og ég var úti á svölum í sólbaði þegar hann fór. svo þegar ég ætlaði inn á klósettið og að fá mér vatn þá kom ég að læstum dyrum. maðurinn læsti mig úti á svölum á sjöundu hæð! ég var þess vegna bara að dúsa í sólbaði þangað til hann kom heim. eins gott að ég var með símann út á svölum, annars hefði honum kannski dottið í hug að fara í græjubúðir eða eitthvað og ég orðið að rúsínu úti á svölum.