Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

fimmtudagur, júní 16, 2005

tónleikarnir báðir gengu bara þrusuvel. mamma og pabbi og tommi komu á seinni tónleikana og skemmtu sér bara ágætlega held ég. þetta var pínulangt í burtu en ágætt að taka bara smá bíltúr og sjá aðeins meira en bara miðbæinn hérna. báðir tónleikarnir voru eiginlega æfing fyrir það sem koma skal...næst verðum við á risasviði úti og líkur á að tíu þúsund manns komi að hlusta. það er bara stuð!
það var alveg frábært að hafa mömmu og pabba hérna í heimsókn, mikið slappað af bara og haft það huggulegt. við fórum líka í gala dinner hjá alþjóðaflugmálastofnunareitthvaðdóti þar sem við tommi vorum beðin um að syngja og spila nokkur íslensk lög. mömmu og pabba var bara boðið með og við mættum þarna fjögur í fínustu fötunum okkar, fengum gott að borða og spiluðum smá tónlist. mamma var nú að grínast með það að þau væru bara grúppíurnar okkar...eltandi okkur útum allt að spila...hahaha.
í dag var ég svo að syngja með francescu og trommuhópi á einhverri kynningu fyrir trommu- eða ásláttarhátíð sem verður haldin hérna í júlí. þetta var nokkurs konar fjölmiðlafundur þar sem teknar voru myndir og vídeó og spurðar spurningar og svoleiðis. við sungum svo og spiluðum eitt lag við góðar undirtektir og fengum okkur svo gos og snittur. góð síðdegisskemmtun það! ég endaði svo daginn á því að fara á æfingu með tomma og hljómsveitinni hans...aldrei nóg af góðri tónlist! :-)