Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

þriðjudagur, júní 07, 2005

gamla settið mætir á pleisið á morgun!

það verður gaman að fá þau í heimsókn...pabbi hefur aldrei komið hingað og mamma var hérna síðast í brúðkaupsundirbúningi með mér. ég er svona að reyna að koma öllu upp úr kössum áður en þau koma en það gengur bara of hægt og mikið eftir. ojæja, það verður bara að hafa sig.

tónleikarnir í síðustu viku gengu bara vel. næstu tónleikar verða á föstudaginn og svo á laugardaginn þá spilum við tommi í einhverjum dinner hjá alþjóðaflugmálastofnun, púff langt orð. það verður stuð!

við tommi erum orðnir meðlimir í heilsuræktarstöð niðrí bæ og ég ætla að reyna að vera dugleg að fara í pilates og yoga og svoleiðis. í dag fór ég í mælingar alls konar og myndatöku til að láta greina líkamsstöðuna. tommi mætti víst stuttu á eftir mér og var að lyfta með mölder (sumsé david duchovny)...þeir bara hinir bestu félagar. hehehe...

britta var að senda mér myndir frá gæsastuði frá því í fyrra...hér eru nokkrar myndir:

ég krýnd
perrinn
myndarlegu lúðarnir
dömur og prinsessuterta
dömuboð
litla systir í stuði