Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

laugardagur, júní 18, 2005

ég átti alltaf eftir að segja frá afmæli eiginmannsins sem var fyrir nokkrum dögum. ég hef bara verið svo upptekin eitthvað og lítið verið að blogga á meðan mamma og pabbi voru í heimsókn.
eeeeeeeeeeeníveiis.
við mamma fórum í bakaríið hérna í atwatermarkaðnum snemma um morguninn áður en tommi vaknaði og keyptum alls konar kræsingar, þar á meðal tvær kökur sem voru guðdómlegar. við borðuðum morgunmatinn saman og tommi fékk afmælispakka...húsbóndastól að eigin vali. :-) um kvöldið fórum við svo út að borða á svakalega góðan veitingastað sem heitir chez l'epicier og er í gamla bænum. við fengum okkur líka göngutúr í gamla bænum í góðu veðri og sáum alls kyns fólk og skemmtilegheit. inni á veitingastaðnum sáum við frank bielec sem er einn af hönnuðunum í trading places þáttunum í ameríku. ógisslega frægur!
þegar við komum heim fengum við okkur kökur, ís og ávexti og nutum þess til hins ýtrasta! namminamm.

ég ætti kannski að gá hvort ég eigi einhverjar myndir...jú never nó.