Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

þriðjudagur, maí 10, 2005

endajaxlar!

mikið svakalega er leiðinlegt að fara í endajaxlatöku. ég fór í eina slíka í gær og lét bara fjarlæga allt draslið. mínir voru nefnilega hvorki komnir upp né niður og þurfti því að skera þá alla í burtu. ég fór sem betur fer til sérfræðings sem sérhæfir sig í akkúrat svona skurðum og gerði hann þetta fljótt og vel. reyndar gekk illa að deyfa mig og ég fékk ábyggilega tuttugu sprautur í kjaftinn á mér og svo var einn jaxlinn svo fastur og djúpt niðri að það þurfti að bora hann að hluta til úr og deyfingin var ekki alveg næg þ.a það var smá sárt og dálítil átök. þetta tók samt alveg svakalega stuttan tíma og maðurinn var rosalega snöggur að sauma fyrir götin. svo þegar ég ætlaði að standa upp þurfti náttúrulega að líða aðeins yfir mig (minnsta sem ég gat gert) og þá lét hann mig blása í bréfpoka og skvetti á mig vatni. sérlega hressandi allt saman. svo er ég búin að vera mállaus síðan í gær og mjög vönkuð eitthvað og slöpp. ég fór samt að læknisráði og notaði frosið grænmeti í gríð og erg í gær og þess vegna er ég ekkert voðalega bólgin. takk fyrir það!

nú er verið að mála íbúðina okkar og verður það líklega búið í vikulok. við getum þá vonandi flutt bara um helgina. það væri óskandi. :-)