nú er ég byrjuð í próflestri eina ferðina enn...síðasta skiptið á þessu skólaári. thank god! ég klára 22. apríl og hvað tekur við þá veit enginn. ég held í vonina að finna mér hljómsveit, búin að vera að reyna við nokkra tónlistarmenn upp á síðkastið og nokkrir sem koma til greina. það kemur allt saman í ljós þegar þessi blessuðu próf eru búin.
tommi fer til íslands í næstu viku og skilur mig eftir eina í prófum...sem er bara ágætt af því að þá er minni truflun hérna heima fyrir. þegar hann kemur aftur heim þá förum við á fullt í flutninga og þegar það er búið ætlum við bara að slappa af úti á svölunum okkar með kokteil í annarri (óáfengan að sjálfsögðu) og sólarvörnina í hinni. jeeeeeehhh!
við vorum annars að klára kanadísku skattaskýrsluna okkar og búin að senda hana. og skilatíminn er ekki fyrr en eftir hálfan mánuð!
hér er annars komið vor! eftir viku er spáð 23°C hita...akkúrat þegar tommi fer til íslands og ég verð byrjuð í prófum. gott að vita að vorprófaveðrið hérna í kanada er svipað og annars staðar...alltof gott!!!

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home