Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

fimmtudagur, apríl 28, 2005

löglegir íbúðareigendur!

í dag skrifuðum við undir eignaskipti og afhentum stóra ávísun til löggilda fasteignasalans. við erum því orðnir íbúðareigendur og allt klappað og klárt. jess!

hér eru þrjár myndir í viðbót:
stiginn upp
gangurinn
svefnherbergi

við komumst svo að því í dag þegar við fórum og skoðuðum íbúðina að það er hægt að fara út á svalir og upp stiga á lítinn pall þar sem sést yfir alla borgina, sunnan fjallsins. ekki ónýtt útsýni það!