Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

föstudagur, apríl 15, 2005

jæja, er ekki kominn tími til að skella inn nýjum lögum?

ég fékk upptökur af tónleikum um daginn sem ég söng á og ákvað að búa til mp3 fæla úr þeim...fjögur lög í allt.

fyrsta lagið heitir "all blues" og er dúett með mér og japanskri stelpu. við syngjum báðar byrjunina og svo syng ég engin orð heldur bara dabadúbídei.

All Blues

næst er "take five" sem flestir kannast við. með mér er "rhythm section" sem saman stendur af trommum, bassa og píanói.

Take Five

að lokum eru tvö íslensk lög sem allir þekkja...ég náði ekki að læra textann fyrir öll erindin í "krummi svaf" hehe...og það heyrist furðulega í hristunni í "tunglið tunglið taktu mig"

Krummi Svaf í Klettagjá

Tunglið Tunglið Taktu Mig

enjoy!