þá er kominn apríl og ekkert verið að gabba með það!
tónleikarnir í gær voru mjög skemmtilegir og við hjónin stóðum okkur með prýði í að kynna íslenska menningu. ég söng svo líka "take five" (með tilheyrandi improvisation og útúrsnúningum) og "all blues" (dúett með japanskri stelpu sem söng orðin en ég söng aðallega dilljadúbadíra o.s.frv.) og gekk það bara ansi vel líka. undirspilið samanstóð af píanóleikara, bassaleikara og trommuleikara...sumsé heil "rhythm section" sem er miiiiiiiiiiiiklu skemmtilegra heldur en að syngja karaókí. við fengum meira að segja gott klapp og hrós frá kennurum og viðstöddum. jess!
páskarnir voru mjög fínir. ég eldaði lambakjöt og tommi spilaði playstation. við slöppuðum af, fórum í búðaráp (já, búðir eru opnar hér um páskana eins og aðra daga) og borðuðum góðan mat. sumsé alveg snilldarfrí í rólegheitum bara.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home