Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

miðvikudagur, apríl 27, 2005

í dag á svanhildur anja vinkona mín afmæli og óska ég henni til hamingju og góðu gengi í prófum sem öðru. gratulerar!

hér hjá mér er hellidemba ennþá og ekki líklegt að það stytti upp á næstunni. ég fékk þar af leiðandi að kaupa mér guðdómlega kápu/frakka...sem voru eiginlega verðlaun fyrir prófin og fyrir að vera dugleg og góð stelpa. heheh. monsieur google fær þakkir mínar fyrir. ;-)

ég er sumsé búin í prófum og búin með öll verkefni og farin að koma mér í flutningagírinn. við förum og skrifum undir í fyrramálið og vonandi að það gangi að óskum. þangað til þá bið ég bara að heilsa og nú andar suðrið sæla vindum þýðum og hvaðeina...

stínan