argghhh! ég gleymdi myndavél í gær, síðasta sjóið og rosastuð og fullt af kodak mómentum. sýningin gekk bara svakalega vel, þ.e síðasta sýningin. tommi mætti og mun fleira fólk en á hinar tvær sýningarnar. svo eftir allt saman fórum við nokkur á barinn og ég svolgraði í mig kók og vatni...hehe...og ég er vöknuð, klukkan er ekki nema hálfátta hér! seinna í dag fer svo hljómsveitin hans tomma gunn að taka upp og það vill svo skemmtilega til að þeir eru að fara að taka upp á sama stað og ég var að syngja í gær!
skólinn er að verða búinn hjá mér. síðustu tímarnir verða á mánudaginn og svo hefst próftímabilið. ég fer í nokkur próf, það síðasta 22. apríl að mig minnir. eftir það verður bara farið á fullt í að flytja í nýju íbúðina okkar og koma okkur fyrir þar. jíha! ekki að ég sé neitt svakalega spennt fyrir flutningunum sjálfum, er eiginlega komin með dálitla leið á að flytja. við tommi höfum flutt alltof oft síðustu árin, árlegur viðburður að meðaltali held ég.
gleðilegan laugardag! njótið helgarinnar :-)

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home