stína stendur sig ekki í blogginu!
ojæja. ég var líka í prófi í gær og þurfti að læra slatta fyrir það...og svo fer ég í próf á fimmtudaginn líka. alltaf próf hjá mér!
ég horfði á óskarsverðlaunaafhendinguna og fannst kjólarnir margir hverjir æðislegir. beyonce var í svakalegum múnderingum...en mér fannst þessi lög sem hún söng frekar leiðinleg...alltof commercial formúlulög fyrir minn smekk. svo var ég mjög ánægð með að ryan skyldi vinna best short film (animated) af því að hann er kanadamaður og nefndi montreal í ræðunni sinni. ég var líka ánægð með að Cate Blanchett skyldi vinna af því að hún var æðisleg í the aviator. ojé.
ég er að skrópa í skólanum...bara fékk mig ekki í að fara í skólann í dag. dónt nó væ. það koma bara stundum svona dagar. svo erum við líka komin með kisu í pössun. þau jóhanna og jói eru nefnilega farin suður á bóginn og við fáum hana myllu í heimsókn á meðan. mér finnst bara mjög huggulegt að vera með litla kisu hér í heimsókn. ég vona bara að henni finnist það líka huggó!

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home