Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

laugardagur, mars 19, 2005

jæja, búin að liggja í leti í allan dag þó að ég hafi ekki mátt vera að því. ég bara nenni engu í dag. er það ekki bara allt í lagi?

við hjónin erum að mausa við að fjárfesta í íbúð en ég ætla ekki að setja inn neinar myndir eða yfirlýsingar fyrr en allt er klappað og klárt. vonandi verður það sem fyrst. :-)

kisan er ennþá í roknastuði hérna hjá okkur. ég er bara hrædd um að hún verði orðin alltof æst þegar hún fer aftur til eigendanna, við erum nefnilega alltaf að leika við hana með gervimúsum, bandi, bréfum og tilheyrandi og á hún það til að tjúllast alveg og skoppa um allt með kryppu. hmm...

ég syng á tónleikum 31. mars...og í þetta skiptið einsöng. loksins!
allir að mæta sem geta, oscar peterson hall klukkan átta. jíha.

hér er ennþá of kalt fyrir minn smekk. ég bíð óþreygjufull eftir vorinu. mér er sagt að vordagurinn fyrsti sé á morgun. miðað við spána var einhver að ljúga því að mér. fjandakornið!

páskarnir eru eftir viku og ég er ekki búin að panta eða láta senda mér nóa páskaegg. stress! ætli við verðum ekki bara að láta okkur nægja lindt páskakanínur og reyna að troða heimatilbúnum málsháttum í þær einhvern veginn. heh.