föstudagurinn langi hefur yfirleitt verið ógurlega leiðinlegur dagur. hann ætlar aldrei að enda og svo virðist sem nammiþörf og almenn verslunarþörf magnist upp úr öllu valdi þennan eina dag ársins, akkúrat þegar allt er lokað (nema þessi eina eða tvær sjoppur). það er ekki sami bragur á hér í kanada. búðir eru almennt opnar og fólk yfirleitt í hátíðarskapi, fegið yfir því að fá langa helgi svona þegar farið er að vora. hér heitir þetta heldur ekki föstudagurinn langi heldur "good friday". ég er að hugsa um að tileinka mér bara þetta viðhorf...að þetta sé föstudagurinn góði. föstudagar eru nú yfirleitt góðir en ætli maður reyni ekki bara að hafa þennan alveg sérstaklega góðan. :-)
nú fer að líða að tónleikunum mínum. ég er ofsalega spennt að fá að syngja ein en enn betra er að tommi ætlar að spila undir hjá mér í tveimur lögum. við ætlum að flyja tvö íslensk lög, kennaranum mínum fannst það svo afskaplega sniðugt og ég er bara ánægð ef ég fæ að syngja fleiri lög. jess!

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home