Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

mánudagur, mars 07, 2005

það er ennþá vetur í montreal og ég er orðin óþolinmóð!
hvar er vorið? það bólar ekkert á því og veðurspáin fyrir vikuna er bara frost, snjór og meira frost. fnus!
og vorvörurnar eru komnar í búðir en ekki séns að klæðast þeim í þessum kulda. hálfkjánalegt að ganga framhjá búðagluggum með stuttum pilsum og vorlegum stuttermabolum þegar maður er sjálfur í dúnúlpu með húfu.

kisan er bara í stuði hérna hjá okkur. hún kurrar og hrýtur og kelar við tomma eins og hún eigi lífið að leysa. ég held að hún sé að reyna við hann. don't mess with my man pussycat!

ég minni fólk á alþjóðakvennadaginn á morgun. allir að vera æðislega miklar konur...koooonur...