mont tremblant var æææææææææði!
við ákváðum að fara í snjósleðaferð og vorum í rúma tvo tíma að snjósleðast um skóginn, á vötnum, upp og niður brekkur og útum allt. veðrið var yndislegt, sólskin og stillt og ekki alltof kalt. á leiðinni sáum við dádýr og tókum líka nokkrar myndir sem ég á eftir að skella í tölvuna. ég var með eigin snjósleða og komst alveg upp í 60 á honum...jeeeeeeeeeeeee!
eftir snjósleðaferðina fórum við svo í spa með svona hammam böðum...sumsé volgri gufu. við sátum og slöppuðum af þar í um hálftíma og fórum svo bæði í nudd...draumur í dós. það var svo fallegt þarna, manni leið hálfpartinn eins og maður væri kominn í eitthvað exótískt land langt í burtu.
við gistum á fínu hóteli í hjarta tremblant...en sváfum ekki alveg nógu vel útaf einhverjum partýglöðum unglingum í næstu herbergjum. það er nefnilega spring break núna og ameríkanarnir mæta til quebec að skemmta sér.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home