Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

fimmtudagur, febrúar 03, 2005

í gær söng ég á tónleikum með jazzkórnum mínum. þetta voru tónleikaðir tileinkaðir skáldinu langston hughes og tónskáldinu dave brubeck. það var rosastuð enda fékk ég að standa fremst í öllum lögunum...hehehe...þetta virkar nefnilega þannig að það eru tveir um míkrafón og hópnum er ekki raðað upp í svona týpískar kórstellingar. ég var líka með svo fallega eyrnalokka sem hún britta gaf mér...

kennarinn minn hún jeri var að fá verðlaun fyrir "lifetime achievement", martin luther king verðlaun einhver...ekki amalegt það. hún syngur líka alveg óóóótrúlega vel, blandar saman klassískri tækni og jazz og er með hrikalegt raddsvið. hún söng á tónleikunum í gær og það var svooo flott, maður bara fór næstum að gráta.

ég er ennþá ein heima. tommi svaf á mirage hótelinu í las vegas í nótt! ósanngjarnt! hehe.