ég fer í fríið...ég fer í fríið...
núna er sumsé spring-break hjá mér. fræðilega er þetta lærdómsfrí af því að í þarnæstu viku verða einhver próf en ég ætla samt að nota helgina í afslöppun og skemmtilegheit. ef ég fæ tomma til að líta upp úr google í augnablik...hehehe...
síðasta vika var annasöm. ég fór í fjögur próf og stóð mig bara ágætlega. svo sungum við tommi og spiluðum á þorrablóti í gær. þorrablótið hér er yfirleitt með öðru sniði en maður er vanur. það er víst bannað að flytja inn súrmatinn en hákarlinn var þarna og ýmislegt sem vestur-íslendingarnir og þeir sem búa hérna koma með. mikið af öldruðu fólki af skandinavískum ættum í bland við fólk sem er nýflutt hingað. skrautleg samkoma eiginlega en það var gaman að hitta þetta fólk og kynnast nýjum íslendingum í montreal.
ég bakaði pönnsur og mætti með hlass af þeim en auðvitað kláruðust þær!
ég hef ekki mikið meira að segja í bili. hmm... er ekki konudagurinn á morgun?

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home