æm só rónrí.
fór í hárgreiðslu um helgina. æðislegt. ég eeeeeeeeeeelska að láta dútla svona við mig. reyndar er hann duane dáldið harðhentur stundum en ég læt mig hafa það.
lærði um soul í jazztíma í dag. komst að því að ég hef líklega vikingsoul í mér. hvernig haga íslendingar sér annars sérstaklega miðað við aðrar þjóðir? þeir eru frakkir, tala hátt og alltaf í reddingum...hvað gera íslendingar þegar þeir þjást, elska, verða reiðir? eða svíar? við horfðum á gospel at colonus sem gerist í african-american kirkju og allir æðislega soulful...ég finn þetta bara ekki í minni íslensk-sænsku sál. íslendingar eru ekkert voðalega mikið fyrir að tjá tilfinningar sínar...eða hvað??? ég hef reyndar nokkrum sinnum fengið kommentið: "you've got soul" eftir tónleika...æ dónt nó.
tommi er í kaliforníu og fer til las vegas með google. god damn! eins gott að ég fór til new york. annars hefði verið ójafnvægi í skemmtiferðum okkar hjóna. hehhe...

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home