Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

fimmtudagur, janúar 27, 2005

jáááááátsa!

þá eru tommarnir báðir búnir að yfirgefa mig og eftir sit ég ein í frosthörkunni hér í montreal.

við tommi bró hittumst í NY fyrir viku síðan og skemmtum okkur konunglega í þessari mjög svo stóru borg. við byrjuðum náttúrulega á því að fara upp í empire state bygginguna og skelltum okkur í útsýnisferð um uptown NY. svo skall á "blizzard" á new york mælikvarða og allt fór í hönk...á íslenskum og montreaölskum mælikvarða var þetta snjókoma og lítið meira en það. við tommi létum þetta ekki á okkur fá og skoðuðum bara í þeim mun fleiri búðir og höfðum gaman af. i heart new york.

svo sáum við celebrity. michael rosenbaum, best þekktur úr smallville þáttunum var í barney's að versla og máta um leið og við. tommi bró var inni í mátunarklefa og michael við hliðina...með svona personal shopper með sér. svo hvarf personal shopperinn eitthvað og þá snýr michael sér að mér og spyr hvort jakkinn og bolurinn sem hann var í passaði saman og ég gaf honum mjög stylish ráð...! svo fór hann úr að ofan og var þarna á sixpakkanum eins og ekkert væri. hehehe...verst að síminn minn var orðinn batteríslaus svo ég gat ekki tekið mynd af honum hálfberum.

ég gat þó tekið nokkrar myndir og þær má finna undir þessum slóða

stuuuuuuuuuuuuuuuð

já og við skemmtum okkur svo sannarlega í saks, bergdorf goodman, bloomies, barney's og á madison av., fifth av. og í soho...gvööööööööð hvað það er gaman að skoða í búðir.