Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

mánudagur, janúar 10, 2005

ég þoli ekki nefkvef. óþolandi að geta ekki sungið almennilega!

ekki mikið að frétta af mér svosem. skólinn er byrjaður og ég er bara að læra og fara í skólann...lítið annað sem gerist. svo er bara hörkuvetur með snjó og frosti hérna í montreal. miiiiiiiiiiiiikið slabb úti á götum og snjófjöll farin að hlaðast upp hvar sem finnst laust pláss.

það er reyndar eitt tilhlökkunarefni sem vert er að minnast á. ég og tommi bró ætlum að hittast í new york í mánuðinum og mála bæinn rauðan yfir eins og eina helgi. bró ætlar svo að koma í heimsókn til montreal og fíla frostið aðeins. húrra fyrir því!