er þá ekki bara komið nýtt ár?
til hamingju með 2005. 2004 var stórmerkilegt og viðburðaríkt. takk fyrir það.
nú erum við unghjónin komin aftur "heim" til montreal og líður bara ágætlega með það. jólatörnin búin þetta skiptið og gekk flest allt fyrir sig áfallalaust. við þökkum þeim sem hýstu okkur og þeim sem nenntu að hitta okkur. við biðjum þá afsökunar sem við heimsóttum ekki og hringdum ekki í en það verður bara alltaf svo mikið um að vera þennan tíma ársins að maður nær bara rétt að fara í jólaboðin og keyra fram og til baka á reykjanesbrautinni. við bætum úr þessu í næstu ferð. i hope.
ferðin heim gekk ekki eins vel og maður hefði vonað. flugleiðum seinkaði sem varð til þess að við misstum af montrealvélinni frá boston. við bókuðum nýtt flug hjá air canada klukkan 6:20 næsta morgun og hæstánægð með að þurfa ekkert að borga fyrir það. hins vegar þurftum við að borga fyrir nótt á hóteli í boston af því að kjáninn ég bókaði air canada á netinu en ekki í gegnum flugleiðir. allt í lagi svosem af því að við fengum góðan díl í gegnum flugleiðir og fínt hótel. svo fínt að við sváfum yfir okkur þrátt fyrir tvær vekjaraklukkur. enn meiri kjáninn ég stillti símann minn á pm í stað am og hótelvekjaraklukkan var of flókin fyrir svona verkfræðing eins og mig. við sumsé misstum af fluginu til montreal og þurftum að bóka enn eitt flugið...svo kom seinna í ljós að hætt var við flugið klukkan 6:20 vegna bilunar! við fórum í loftið eitthvað eftir átta og þegar við lentum í montreal vantaði eina töskuna okkar!! sem betur fer fengum við ágætan leigubíl og komumst heil á húfi heim. en hvar er taskan?
ég fékk síma frá tomma gunn í jólagjöf og get nú tekið myndir hvenær sem er. jíha.
hér er afraksturinn...
ég hjá skólanum í dag
jazztími í skólanum
tommi og júlía á gamlárskvöld
ég og tommi bró á tónleikum
ég að bíða á flugvellinum í boston
hey já, ég fékk A í öllu í skólanum. vei.

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home