Stína stuð og Tommi Gunn skoða heiminn...

þriðjudagur, janúar 11, 2005

er ekki alveg bráðupplagt að skella inn nokkrum áramótaheitum líka?

ókei. þetta árið ætla ég að:

- hætta að gera ráð fyrir að aðrir syngi betur en ég áður en ég heyri í þeim

- æfa ný lög almennilega og amk eitt á viku

- semja fleiri lög

- kaupa minna drasl

- stuðla að ást og friði í heiminum

- hreyfa mig reglulega

- stofna hljómsveit og sigra heiminn!

takk takk